Á þessari síðu geturðu séð svör við algengum spurningum sem viðskiptavinir Skólavefsins hafa spurt. Vinsamlegast skoðaðu vel svörin. Ef þú finnur ekki svar við spurningu þinni er þér velkomið að hafa samband við Skólavefinn með því að senda okkur tölvupóst á netfangið: skolavefurinn@skolavefurinn.is eða í síma 551 6400.

 

Kynning á námsefni (vídeóleiðsögn)

 

Kynning á námsefni (vídeóleiðsögn)

Hér kynnum við á vídeóformi sumt af því efni sem finna má á Skólavefnum.
Athugið að á næstu dögum mun bætast við mikið af kynningarefni.

 

Um áskrift

Fyrir einstaklinga

 

Sýnt er hvernig hægt er að panta áskrift að Skólavefnum. (3 mín. og 30 sek.)


Samræmdu prófin

 

 

Kynning á gagnvirkum samræmdum prófum fyrir 4., 7. og 10. bekk, vikulegu þjálfunarprógrammi, upplýsingar um prófin og ítarefni sem finna má á Skólavefnum. (5 mín. og 10 sek.)


Íslensk skáld

Skáld mánaðarins

 

Umfjöllun um íslensk skáld, sýnishorn af verkum þeirra, viðtöl o.m.fl. (5 mín. og 45 sek.)

Íslendingasögur
Skólavefurinn vinnur að því að setja allar Íslendingasögurnar á Netið og sýnum við hér hvernig þær eru settar fram. (4 mín. og 15 sek.)

Flettibækur
Flettibækur hafa notið mikill vinsælda hjá krökkum. Hægt er að fletta blaðsíðum í tölvunni líkt og um raunverulega bók væri að ræða. (1 mín. og 35 sek.)

Námsleikir og krossgátur

Kynning á námsleikjum og krossgátum sem finna má á Skólavefnum og eru bæði fræðandi og skemmtilegar. (3 mín.)

Efni fyrir yngri börn
Sýnt er sumt af því efni sem í boði er fyrir krakka í leikskóla og í fyrstu bekkjum grunnskóla. Efni fyrir krakka, foreldra og kennara. (5 mín. og 30 sek.)

Danska - málfræði

Mikið af efni er til í danskri málfræði, bæði fyrir grunn- og framhaldsskóla. (5 mín.)

Heimastjórnarvefur

Efni sem Skólavefurinn gerði í tilefni af 100 ára afmæli heimastjórnar á Íslandi, með stuðningi Þjóðmenningarhússins. (4 mín. og 30 sek.)


Stærðfræðiþjálfi


Stærðfræðiþjálfi er skemmtilegt margmiðlunarefni sem þjálfar nemendur í reikniaðgerðunum fjórum, þ.e. samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu. (2 mín. og 15. sek.)
Heimurinn í hnotskurn

Frábært efni í landafræði.. (1 mín. og 45 sek.)


Vefleiðangrar

Gerir notendum Skólavefsins kleift að vinna með efni víðs vegar að af veraldarvefnum.

 

Einstaklingar

Áskriftir - einstaklingar

Algengar spurningar og svör

Hvernig gerist ég áskrifandi?

Þú getur gerst áskrifandi á netverslun Skólavefsins: www.skolavefurinn.is/askrift eða í síma 5516400.

Hvernig get ég greitt fyrir áskrift?
  • Vísa/Eurocard - 1.290 kr eru teknar af korti einu sinni í mánuði
  • Beingreiðslur - 1.290 kr eru teknar af bankareikningi einu sinni í mánuði.
  • Greiðsluseðill - lágmark 2 mánuðir + seðilgjald.

Ef ég gerist áskrifandi með kreditkorti eða í beingreiðslu hvað er ég þá bundinn lengi sem áskrifandi?

Þú þarft einungis að borga fyrir þann mánuð sem hafinn er og miðast greiðslutímabilið við mánaðardaginn sem áskrift hófst:

Dæmi 1: Áskrift hefst 3. september. Sagt upp 8. október. Áskrift lýkur 2. nóvember.
Dæmi 2: Áskrift hefst 10. september. Sagt upp 8. október. Áskrift lýkur 9. október.

Er mér óhætt að gefa upp kortanúmer á netversluninni?

Við leggjum mikla áherslu á að gæta öryggis viðskiptavina okkar. Þess vegna eru allar upplýsingar sem notendur gefa upp dulkóðaðar skv. hinum aðlþjóðlega SSL staðli.

Hvernig segi ég upp áskrift

Áskrift er hægt að segja upp á netfanginu skolavefurinn@skolavefurinn.is . Best er að svara (reply) tölvupóstinum sem sendur var með aðgangsorðunum og taka fram að áskrift sé sagt upp. Ef þú finnur ekki tölvupóstinn vinsamlegast taktu fram eftirfarandi upplýsingar: nafn þess sem skráður er fyrir áskrift, kennitölu. heimilisfang, síma og netfang áskrifanda.

 

Aðgangsorð

Aðgangsorðið mitt virkar ekki

  • Opnaðu tölvupóstinn sem þú fékkst sendan með aðgangsorðunum. Afritaðu aðgangsorðin og límdu í reitina á Skólavefnum. Vídeóskýring
  • Er hugsanlegt að þú hafir sagt upp áskriftinni?
  • Er hugsanlegt að áskriftargjaldið hafi ekki verið greitt?

 

Tæknivandamál

Ég get ekki opnað skjal/verkefni.

Skjal til útprentunar opnast ekki. Prófaðu að smella hér. Ef skjalið opnast ekki þarftu að setja inn á tölvuna Acrobat Reader (fæst endurgjaldslaust):
Sjá vídeoóskýringu.

Ef þú getur ekki opnað annað efni vantar þig sennilega annað hvort Flashspilara eða java. Bæði forritin fást endurgjaldslaust á Netinu.
JAVA: Ef þú sérð ekki æfinguna birtast eðlilega þarftu að setja inn Java forritið. Sjá vídeókennslu.
Flash: Flash - vídeóskýring.

Eftir að hafa sett inn forritin lokaðu vafranum og opnaðu aftur.

Annað (væntanlegt)

 

Efst á síðu

Skólar og stofnanir

Áskriftir - skólar og stofnanir

Ég er kennari og mig langar að nota efni Skólavefsins, en skólinn sem ég kenni við er ekki áskrifandi. Má ég kaupa einstaklingsáskrift og nota efni vefsins við kennslu í skólanum?

Einungis er kennurum heimilt að nota efni Skólavefsins við kennslu ef skólinn er áskrifandi.

Má ég láta nemendur mína fá aðgangsorð að Skólavefnum til að þeir geti æft sig æfa heima hjá sér?

Óheimilt er að láta nemendur fá aðgangsorð skólans. Hægt er að festa þau inn á tölvur skólans, með því að haka í litla hvíta reitinn fyrir neðan þar sem aðgangsorðin eru slegin inn. Vilji nemendur hafa aðgang að Skólavefnum heima hjá sér geta þeir keypt einstaklingsáskrift á 1.290 kr á mánuði.

Ég er kennari og á krakka í grunnskóla. Má ég leyfa þeim að fara á aðgangsorði skólans til að æfa sig heima?

Kennurum er einungis leyfilegt að fara inn á aðgangsorði skólans heima hjá sér til að undirbúa sig fyrir kennslu. Vilji kennarar hafa aðgang fyrir börn sín að Skólavefnum verða þeir að kaupa heimilisáskrift á 1.290 kr á mánuði.

Skólinn minn sagði upp áskrift að Skólavefnum. Ég er búin að prenta út efni af Skólavefnum sem fyllir margar möppur. Má ég nota efnið áfram við kennslu?

Nei, það er óheimilt. Einungis má nota efni Skólavefsins við kennslu á meðan á áskrift stendur. Eftir að áskrift lýkur er ekki leyfilegt að leggja fyrir efni í kennslu sem fengið hefur verið af Skólavefnum hvort sem um útprentað efni er að ræða eða efni sem vistað hefur verið á stafrænt form.

Getur skólinn minn keypt áskrift að Skólavefnum hluta úr ári?

Nei, áskrift að Skólavefnum miðast við 12 mánuði á ári. Skólar geta hætt áskrift hvenær sem er ef þeim líkar ekki þjónustan, en eftir það mega þeir ekki nota það efni sem fengið hefur verið á Skólavefnum.

Í bæjarfélagi úti á landi eru tveir skólar og kenna margir kennarar við báða skólana. Einungis annar skólinn er áskrifandi. Mega kennarar prenta út efni í skólanum sem er áskrifandi og nota í hinum skólanum, þar sem þeir kenna við báða skólana?

Ef ekki er um sama skóla að ræða, þá er það óheimilt. Til að nota efni Skólavefsins í skóla, þarf viðkomandi skóli að vera áskrifandi.

Hvað kostar áskrift fyrir skóla að Skólavefnum?

Sjá upplýsingar á áskriftarsíðu.

Aðgangsorð

Aðgangsorðið mitt virkar ekki

  • Opnaðu tölvupóstinn sem skólinn fékk sendan með aðgangsorðunum. Afritaðu aðgangsorðin og límdu í reitina á Skólavefnum. Vídeóskýring
  • Spurðu skólastjóra eða tölvuumsjónarmann.
  • Er hugsanlegt að þú hafir sagt upp áskriftinni?
  • Er hugsanlegt að áskriftargjaldið hafi ekki verið greitt?

Er hægt að opna fyrir IP-tölu, þannig að ekki þurfi að slá inn aðgangsorð á tölvur innan veggja skólans.

  • Það er hægt. Sendið okkur einfaldlega IP-töluna og við opnum fyrir hana.

Tæknivandamál

Ég get ekki opnað skjal/verkefni.

Skjal til útprentunar opnast ekki. Prófaðu að smella hér. Ef skjalið opnast ekki þarftu að setja inn á tölvuna Acrobat Reader (fæst endurgjaldslaust):
Sjá vídeoóskýringu.

Ef þú getur ekki opnað annað efni vantar þig sennilega annað hvort Flashspilara eða java. Bæði forritin fást endurgjaldslaust á Netinu.
JAVA: Ef þú sérð ekki æfinguna birtast eðlilega þarftu að setja inn Java forritið. Sjá vídeókennslu.
Flash: Flash - vídeóskýring.

Eftir að hafa sett inn forritin lokaðu vafranum og opnaðu aftur.

 

Efst á síðu

 

©2000 Skólavefurinn ehf.
Laugavegi 163, 105 Reykjavík
sími: 551 6400

skolavefurinn@skolavefurinn.is