|
|
 |
|
|
 |
Forrit til að prenta út dæmablöð
Nú geturðu prentað út dæmablöð með orða- eða töludæmum eins og þú vilt.
Þú getur valið gerð dæma, tölur sem birtast í dæmum og uppsetningu.
Engin tvö dæmi verða eins.
Auðvelt að velja dæmi sem henta hverjum nemenda.
|
1) Orðadæmi: Samlagning og frádráttur
|
Orðadæmi í samlagningu og frádrætti eru oft greind í 11 flokka eftir því hvaða atriði er verið að þjálfa. Forritið gerir kleift að raða saman á blað dæmum eftir tegundum. Valið er hve mörg dæmi úr hverjum flokki birtast og á hvaða bili tölurnar í dæmunum eiga að vera. Forritið sér síðan um að búa til orðadæmi þar sem engin tvö dæmi verða eins. Hægt er því að prenta ótakarkamaðan fjölda af dæmablöðum, þar sem nemendur glíma alltaf við ný og ný dæmi. Svör fylgja.
|
|
Til að efnið birtist rétt, þarf nýjustu uppfærslu af Flash-spilaranum, en þú nærð í hann ókeypis með því að smella hér: Flashspilari
Vídeóleiðbeiningar - uppsetning flashspilara.
Ath. Í netkerfum sumra skóla getur tölvuumsjónarmaður einn sett inn ný forrit. |
Hjálpaðu okkur að gera forritið enn betra. Leyfðu okkur að heyra hvað þér finnst.
Tölvupóstur |
2) Töludæmi: Samlagning, frádráttur, margföldun og deiling |
Í forritinu er hægt að prenta samlagningar-, frádráttar-, margföldunar- og deilingardæmablöð eftir eigin höfði, þar sem hægt er að velja hvaða tölur eru í dæmunum, uppsetningu þeirra, hvort myndir eigi að vera á dæmablaðinu og margt fleira. Tölurnar í dæmunum eru valdar af handahófi og því hægt að prenta dæmablöð með nýjum tölum í hvert skipti. Jafnframt er hægt að fá tillögur að dæmablöðum fyrir einstaka bekki.
|
|
Til að efnið birtist rétt, þarf nýjustu uppfærslu af Flash-spilaranum, en þú nærð í hann ókeypis með því að smella hér: Flashspilari
Vídeóleiðbeiningar - uppsetning flashspilara.
Ath. Í netkerfum sumra skóla getur tölvuumsjónarmaður einn sett inn ný forrit. |
Hjálpaðu okkur að gera forritið enn betra. Leyfðu okkur að heyra hvað þér finnst.
Tölvupóstur |
|
Gagnlegt forrit til að þjálfa margföldunartöfluna og sem er þannig úr garði gert að nemandi kemst ekki í gegnum það nema hafa náð að svara öllum spurningum rétt. Spurningar sem nemandi svarar rangt þarf hann að glíma aftur við síðar í æfingunni og hægt er að velja hve oft. Nemandi getur valið að æfa sig í einni margföldunartöflu í einu, t.d. 3x töfluna eða nokkrum í einu t.d. 4x, 5x og 7x. Hann getur látið forritið rugla af handahófi röð spurninga og valið hvort tölum sé víxlað, t.d. 2x4 og 4x2. Punktateikningar auðvelda nemendum að svara spurningum sem þeir svara ekki rétt í fyrsta skipti. Þá er hægt að velja hvort tími sé tekinn á því hve lengi nemandi er að svara æfingunni. Í lokin birtist svo yfirlit yfir árangur nemandans og hægt er að prenta út þau dæmi sem hann svaraði ekki rétt. Vídeóleiðbeiningar fylgja þar sem hægt er að fá gott yfirlit yfir virkni forritsins. Við hvetjum alla til að kynna sér þessa áhugaverðu nýjung.
|
|
Margföldunartaflan
Vídeóleiðbeiningar
Við viljum gjarnan heyra frá þér um efnið: Tölvupóstur |
Hraðaleikur
Skemmtilegur og gagnlegur leikur sem þjálfar ýmis atriði í stærðfræði. Leikurinn skiptist í 6 borð og 3 þyngdarstig. Eftir því sem svarað er hraðar þeim mun fleiri bónusstig fær nemandi.Við mælum með að 1. bekkingar velji samlagningu eða frádrátt á aðalvalmynd. Gleymið ekki að hækka í hátölurunum. Góða skemmtun!
Við viljum gjarnan heyra frá þér um efnið: Tölvupóstur
Hraðaleikur í stærðfræði
|
|
| |
|
Froskaleikur
|
Skemmtilegur gagnvirkur stærðfræðileikur fyrir yngstu krakkana þar sem þeir eiga að hjálpa froskinum ofan í tjörnina sína með því að reikna dæmi.
|
|
|
Í þessum leik á að telja epli og velja viðeigandi tölustaf. Fyrir hvert rétt svar er gefin stjarna, en stjarna dregst frá ef svarið er rangt. Þegar krakkinn hefur safnað 10 stjörnum hefur hann lokið leiknum. Hægt er að fara aftur og aftur í leikinn, þar sem fjöldi eplanna er handahófskenndur frá 1 upp í 10.
Leikurinn hentar vel þeim sem eru að læra að telja.
|
| |
|
Skemmtilegur leikur, sem þjálfar nemendur að telja
og að leggja einn við og draga einn frá. |
| |
|
Þjálfar samlagningu og frádrátt |
Dæmahefti til útprentunar
|
Dýrin mín stór og smá - Þjálfunarhefti
Ný einföld vinnuhefti í stærðfræði þar sem allar helstu grunnaðferðir eru þjálfaðar. Efnið má nota sem viðbótarefni fyrir nemendur sem eru komnir á undan eða eru á eftir, eftir því í hvaða árgangi það er notað. |
 |
Dýrin mín stór og smá 1
(samlagning)
Lausnahefti við
Dýrin mín stór og smá 1
|
Fyrsta heftið tekur fyrir samlagningu og telur 12 bls. með forsíðu.
|
| Rúmfræðihefti |
| |
Til útprentunar
Lausnir
Forsíða
Gagnvirkt
|
18 blaðsíðna
hefti sem hentar vel til hliðar við almennt námsefni.
Höfundur er Árni Jón Hannesson, kennari við Varmárskóla. |
| Tölur
|
|
|
Punktateikningar
2 bls.
|
Í þessari æfinguá nemandi að klára að teikna
myndir með því að tengja á milli punkta. Góð æfing
fyrir krakka sem eru að ná tökum á talningu. |
Stærðfræðiormurinn
Mjög gott stærðfræðiefni frá breska bókaútgefandanum Domino Books.
|

|
Forsíða
1. hefti
2. hefti
3. hefti
4. hefti
|
Hentugt fyrir 1. bekk eða elsta árgang í leikskóla
1. hefti er 14 bls.
2. hefti er 12 bls.
3. hefti er 10 bls.
4. hefti er 8 bls.
|
| Tímamælingar |

|
Tímamælingar
Dagur í lífi Jóa
Til útprentunar
Gagnvirkt
|
Í ,,Dagur í lífi Jóa" er fylgst með Jóa einn dag, hvað hann gerir og hvenær.
Í dagbókin mín er skemmtilega sett upp dagbók sem nemendur eiga að fylla út og merkja inn á klukkur.
|
|
Dagbókin mín
Hvað er klukkan? |
ÞjálFunaræfingar á klukku. |
|