Ummæli frá notendum um Skólavefinn
"Frábært úrval af efni til enskukennslu. Hef nýtt mér krossgátur, stíla og blaðagreinar fyrir 9. og 10.bekk og vakti það mikla lukku. Frábær leið til að brjóta upp kennsluna og koma með nýtt efni. " - Sjöfn Yngvadóttir, nemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
"Skólavefurinn nýtist mér vel sem kennara, ég hef fundið skemmtileg verkefni sem ég hef lagt fyrir nemendur mína. Einnig hefur skólavefurinn nýst vel heima fyrir, unglingurinn minn fundið verefni við sitt hæfi og einnig höfum við notað mikið krakkasíðuna fyrir þær yngri."
- Herdís, kennari
"Þökkum fyrir skemmtilegan vef. Hann náði, með ykkar hjálp, 98 í íslensku og 96 í stærðfræði í síðustu samræmdu prófum. TAKK FYRIR :)"
- Móðir nemanda í 4. bekk
"Mín reynsla af vefnum er frábær. Ég hef notað þennan vef mjög mikið í gegnum árin. Að hafa aðgang að svona vef þegar maður er að aðstoða börnin sín með nám er ótrúlega dýrmætt. Við notuðum skólavefinn mjög mikið fyrir elstu dóttir okkar þegar hún var að læra undir próf í grunnskóla. Hún er lesblind og hefur því þurft að hafa töluvert meira fyrir hlutunum og þurft að leggja meira á sig til þess að ná góðum einkunnum. Það að hafa aðgang að efni á síðunni ykkar auðveldaði mér og manninum mínum hlutina töluvert, því að skólinn hennar var oftast ekkert of viljugur í að útbúa aukaefni hvað þá að gefa okkur ljósrit af gömlum verkefnum og prófum. Eins notuðu sonur okkar og yngri dóttir síðuna mikið þegar þau fóru að hafa áhuga á að læra stafinu og tölurnar.
Núna eftir að við fluttum erlendis er ómetanlegt að hafa aðgengi að öllu þessu efni og geta leyft krökkunum okkar að fylgjast með því sem kennt er á Íslandi og fyrir þau að halda í íslenskuna, því ekki erum við svo heppin að hafa íslensku kennslu hérna. Mér finnst að allir þeir Íslendingar sem búa erlendis og eiga börn á skólaaldri ættu að fá sér aðgang að skólavefnum því það er svo mikilvægt fyrir okkur að halda íslenskunni við og leyfa börnunum okkar að fá tækifæri til þess að læra að lesa og skrifa íslensku. Aðgangur að skólavefnum væri td frábær jólagjöf eða afmælisgjöf frá ömmum og öfum á Íslandi :)"
- Linda Björk
"Kæri Skólavefur!
Ég hef nýtt þjónustu þína nánast frá byrjun og hefur sú þjónusta reynst mér ótrúlega vel. Þú hefur verið frábær viðbót við námsefnið sem ég hef kennt í gegnum tíðina, sérstaklega hef ég nýtt vel allskyns vinnubækur sem hafa verið mjög aðgengilegar og vel uppsettar svo og hlustunarefni og sögur. Það er gott að vita af þér þarna úti, haltu áfram að vera til og gangi þér vel með framhaldið. Bestu kveðjur."
- Kristín Lilja, kennari
"Ég hef verið svo heppinn að vinna að tilteknum verkefnum með starfsfólki Skólavefsins. Þetta eru eldhugar og hugsjónamenn. Það er gaman að starfa með þannig fólki."
- Baldur Hafstað, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
 
|