
Skólavefurinn hefur um árabil aðstoðað íslensk ungmenni í prófundirbúningnum. Bjóðum við upp á eldri samræmd próf í gagnvirkum búningi og þjálfunarnámskeið sem hafa reynst frábærlega í gegnum tíðina.

Þjálfunarnámskeiðið okkar í íslensku skiptist í 34 stundir sem nemandinn getur tekið á sínum eigin hraða. Eru stundirnar samansettar úr verkefnum úr gömlum samræmdum prófum og efni af Skólavefnum.

Þeir nemendur sem hafa í gegnum árin nýtt sér þjálfunarnámskeið Skólavefsins hafa látið mjög vel af þeim og sagt þau bæta námsárangur sinn. Einnig er vert að skoða í heild sinni prófundirbúningssíðu Skólavefsins þar sem finna má þjálfunarnámskeið fyrir öll fög sem og gömul samræmd próf í gagnvirkum búningi. |

Í íslenskri málfræði bjóðum við upp á ítarlegar og vandaðar málfræðiskýringar í þægilegu uppflettiformi. Skýringarnar er hægt að skoða í myndbandsformi og fylgja þeim fjölbreyttar gagnvirkar æfingar.

Farið er yfir helstu hugtök í íslenskri málfræði ætluð efstu bekkjum grunnskólans. Farið er yfir rúmar 100 bls. af skýringum og fylgja gagnvirkar æfingar hverri skýringu.
Einnig er mjög gagnlegt að skoða skýringarnar okkar í stafsetningu en þar er að finna mikið af gagnvirkum æfingum með upplestri en þær eru frábær þjálfun fyrir stafsetningarpróf!
|

Við höfum tekið saman gagnabanka með gagnvirkum æfingum fyrir þá sem vilja þjálfun og æfingu. Hér er að finna 210 sérvaldar gagnvirkar æfingar nákvæmlega flokkaðar eftir því hvaða orðflokk og málfræðihugtak verið er að þjálfa.

Rannsóknir sýna að við lærum best á því að gera sjálf og æfa okkur. Hér er því um að ræða ótrúlega sterkt tól í prófundirbúningnum sem og í almennum lærdómi. Gerið æfingarnar og fáið strax endurgjöf um hvort þetta er rétt hjá ykkur.
 |