The Thirty-nine Steps | skolavefurinn.is

The Thirty-nine Steps

Vefslóð

Lýsing

Efnið er þannig uppsett að hægt er að nýta það á fjölbreyttan hátt. Grunnurinn er sagan The Thirty-nine Steps (Þrjátíu og níu þrep) eftir John Buchan, og geta notendur valið um að lesa hana af vefnum, prentað hana út og lesið hana þannig eða hlustað á hana upplesna. Þá er tilvalið að sameina tvær leiðir, og lesa textann og hlusta á upplesturinn samtímis. Sögunni er skipt upp í tíu kafla eða námsþætti. Er hugmyndin okkar sú að ein stund fari í hvern námsþátt í skólanum og þá einkum til yfirferðar á verkefnum og jafnvel hlustun á næsta kafla. Hverjum kafla fylgja svo efnisspurningar sem hægt er að láta nemendur vinna skriflega eða fara yfir munnlega.

Á vefsíðunni er einnig hægt að sækja sérstakt vinnuhefti og kennslutillögur. Í því hefti er að finna alls kyns verkefni og hugmyndir að verkefnum með sögunni sem kennari getur annað hvort ljósritað í heild sinni eða prentað út í stökum síðum. Verkefnin eru sjálfstæð hvert frá öðru og er hverjum í sjálfsvald sett hve mörg verkefni hann tekur. Hvetjum við kennara og nemendur að skoða það vel, því að þó sagan sé góð er ekki gott að ofgera henni með of mörgum verkefnum. Þarna er líka að finna upplýsingar sem við teljum að ágætt sé að skoða með nemendum áður til skýringar. Þar má nefna upplýsingar um höfundinn, John Buchan og stutta skýringatexta um fyrri heimsstyrjöldina og aðdraganda hennar. Við leggjum ríka áherslu á að kynna söguna vel fyrir nemendum, áður en hafist er handa við lesturinn, þ.e.a.s. höfund hennar, inn í hvaða samtíma hún er skrifuð og helstu undirliggjandi atburði. Í kjölfarið er svo rétt að gera glögga grein fyrir vinnuferlinu sjálfu, hve mikill tími er ætlaður í hvern námsþátt og hvaða kröfur eru gerðar til nemenda.

Námsefnið er einkum ætlað efstu bekkjum grunnskóla, fyrstu bekkjum framhaldsskóla svo og öðrum sem vilja bæta sig í ensku almennt.