Tungutak 1: 2. Nafnorð
Tungutak I er vinnubók í íslensku á unglingastigi grunnskólans ásamt Tungutaki II og Tungutaki III. Tungutak er hluti af heildarnámsefni í íslensku sem Skólavefurinn hefur unnið handa unglingastigi í samræmi við ákvæði nýrrar aðalnámskrár. Í Tungutaki er um að ræða afar fjölbreytileg verkefni, ekki aðeins í málfræði og stafsetningu, heldur einnig og ekki síður í almennri málnotkun og framsetningu texta. Stílfræðileg atriði eru rædd ásamt hugtökum í bókmenntafræði og bragfræði.
Efninu er ætlað að glæða áhuga ungmenna á íslensku máli og menningu og styrkja þá í að ræða um tungumál og texta með hjálp lykilhugtaka í málfræði.
Tungutak 3: 2. Orðflokkar 1 (prent)
Orðflokkarnir eru efni þessa kafla. Nafnorð, lýsingarorð, sagnorð, fornöfn, greinir, atviksorð, samtengingar o.s.frv.
Tungutak 3: 1. Allrahanda 1 (prent)
Þessi kafli er að stórum hluta upprifjun frá fyrri árum og undirbúningur fyrir samræmt próf.
Tungutak 2: 4. Sagnir 2 (prent)
Í þessum kafla höldum við áfram með sagnorðin og lítum á myndir sagna, meira um tíðir, sterka og veika beygingu, ri-sagnir o.fl.
Tungutak 2: 3. Allrahanda 2 (prent)
Í þessum kafla er farið yfir samsett orð, stafsetningu, viðskeyti, fallbeygingu, ritun o.fl.
Tungutak 2: 2. Sagnir 1 (prent)
Í þessum kafla er farið yfir sagnorðin - tíð, persónur, tölu og hætti.
Tungutak 2: 1. Allrahanda 1 (prent)
Í þessum kafla er farið yfir ritun, lýsingarorð, fallbeygingu, orðasambönd, málsnið, þýðingar, ljóð o.fl.
Tungutak 1: 8. Framburður og stafsetning (prent)
Í þessum kafla er farið yfir framburð og stafsetningu. Við lítum m.a. á vestfirskan einhljóðaframburð, sunnlenskan hv-framburð, raddaðan framburð o.fl.
Tungutak 1: 7. Fornöfn (prent)
Í þessum kafla er farið yfir persónufornöfn, spurnarfornöfn, eignarfornöfn, ábendingarfornöfn, afturbeygt fornafn og óákveðin fornöfn.