Grasaferð eftir Jónas Hallgrímsson | skolavefurinn.is

Grasaferð eftir Jónas Hallgrímsson

Grasaferð kom út í síðasta árgangi Fjölnis árið 1847 tveimur árum eftir lát Jónasar.  Er sagan tímamótaverk, en margir telja hana marka upphaf íslenskrar sagnagerðar á síðari tímum og að hún sé fyrsta listræna smásagan í íslenskum nútímabókmenntum.  Jónas mun hafa skrifað hana nokkru fyrr og hafa menn nefnt árin 1835 og 1836.

Nokkur áhöld eru um það hvort sagan eins og við þekkjum hana sé eins og Jónas hafi hugsað sér hana fullkláraða.  Er margt sem bendir til þess að hann hafi ætlað sér að eiga meira við hana.  Hvernig og með hvaða hætti er ómögulegt að geta sér til um.  Til marks um þetta er í fyrsta lagi sú staðreynd að Jónas hafði ekki skráð neitt nafn á söguna og þá endar hún nokkuð óvænt eins og Jónas hafi hætt í miðju kafi.

Þrátt fyrir að sagan sé á yfirborðinu einföld í sniðum, er margt í henni sem krefst nánari skoðunar.   Vilja margir trúa því að sagan sé táknræn og að lykill hennar sé einhvers konar „leit“.  Er þá átt við leit drengsins (Jónasar?) að öryggi, karlmennsku, framtíð o.s.frv.

Image

Tengill

Námsgreinar

Nánari flokkun

Hljóðbækur á Hlusta.is