Halla eftir Jón Trausta

Staða

Staða

Lestu textann og svaraðu spurningunum eins vel og þú getur.

Halla eftir Jón Trausta, sem hét með réttu Guðmundur Magnússon, er fyrsta bókin í ritröðinni um fólkið í Heiðarbýlinu, en þær bækur allar nutu gríðarlegra vinsælda þegar þær komu út og hafa gert alla tíð síðan. Það má reyndar með nokkrum sanni segja að Halla sé fyrsta metsölubókin á Íslandi.  Ástæðuna fyrir því að Guðmundur Magnússon skrifaði undir dulnefni má rekja til þess að ljóð sem hann hafði látið frá sér fara hlutu litla náð hjá þeim sem skrifuðu um bókmenntir.  En þegar sagan Halla kom út árið 1906 vissi enginn hver höfundurinn var. Í kjölfarið skrifaði hann fjórar bækur undir yfirheitinu Heiðarbýlið og margar fleiri sögur.  Jón Trausti lést fyrir aldur fram árið 1918 úr spænsku veikinni og er með ólíkindum hvað honum tókst að skrifa mikið á ekki lengri tíma.  Sögur Jóns Trausta eru sprottnar úr íslenskum raunveruleika og fundu strax samhljóm í hjörtum landsmanna.   Þær eru sannferðugar örlagasögur sem Íslendingar lifðu frá degi til dags.

 

Image

Námsgreinar

Rafbækur á Lestu.is

Hljóðbækur á Hlusta.is