Lega
Mið-Austurlönd. Landið liggur við Persaflóa og á landamæri að Kuwait og Saudi Arabíu í suðri, Jórdaníu og Sýrlandi í vestri, Tyrklandi í norðri og Íran í austri.
Stærð
437.072 km2 (rúmlega 4 sinnum stærra en Ísland)
Loftslag
Á sumrin er heitt og þurrt, en veturnir eru oftast fremur mildir. Þó verður oft kalt og snjóþungt í fjöllum í Kúrdahéruðunum í norðurhluta landsins. Þegar snjórinn þar bráðnar á vorin verða oft mikil flóð. Flóð og sandstormar eru helstu nátttúruhamfarir sem Írakar þurfa að glíma við.
Mannfjöldi
23.331.985 (júlí 2001)
Þjóðflokkar
75% til 80 % landsmanna eru arabískir, 15% til 20% Kúrdar, en aðrir minnihlutahópar af sýrlenskum eða tyrkneskum uppruna eru innan við 5%.
Trúarbrögð
Um 97% landsmanna eru múslimar (60% til 65% sjíta-múslimar, 32% til 37% sunnimúslimar), kristnir menn eða fólk af öðrum trúarbrögðum er innan við 3% landsmanna.
Tungumál
Arabíska er opinbert mál í Írak, en Kúrdar í norðurhéruðunum tala sitt eigið mál og telst það opinbert á þeirra svæði.
Höfuðborg
Bagdad
Fáni