Kaflar

7. Samír

Fyrir Míru tók við tími ástar og gleði. Hún notaði hvert tækifæri til að hitta Samír og öllum var ljóst að á milli þeirra hafði kviknað ást. Móðir Míru horfði á hana með tvíræðu augnaráði. Míra vissi hvað hún var að hugsa. Hún var verndari þorpsins og verndarar höfðu ekki mikinn tíma fyrir ást, fjölskyldulíf og börn. Verndararnir höfðu svo lengi sem hún mundi verið einfarar.
Míra sagðist alveg geta sameinað þetta tvennt. „Mamma, ég er ekki eins og hinir verndararnir. Það segir hvergi að við megum ekki eignast maka og fjölskyldu.“
„Nei,“ sagði móðir hennar, „það er rétt, en farðu samt varlega.“
„Mamma, ég er ekki lítil lengur. Ég er ung kona og ég vil eignast maka. Ég vil verða kona Samírs.“
Míra var staðráðin í að láta þetta ganga upp. Hún og Samír lögðu á ráðin um framtíðina og hvar þau vildu búa í þorpinu. Tjald Gelfar gömlu stóð Míru til boða, en hvorki hún né Samír vildu búa þar. Samír var búinn að taka frá tjaldstæði í útjaðri þorpsins þar sem fleira ungt fólk hafði komið sér fyrir.
Míra sá ekkert nema Samír. Hún vildi verða konan hans og eignast börn eins og aðrar ungar stúlkur í þorpinu. Hún vildi vera venjuleg og njóta þess að vera til.
Innst inni vissi hún þó að þetta myndi verða erfitt. Mamma hennar vissi það líka og reyndi að tala við hana.
„Elsku Míra mín, þú veist að þú hefur margt á þinni könnu og ábyrgð þín er mikil. Ertu viss um að þetta gangi upp? Veit Samír hvaða skyldum þú þarft að gegna? Getur þú ráðið við þetta allt? Ertu að standa þig, Míra mín? Ferðu alltaf út í skóg á fullu tungli?“
Þannig gekk þetta, en Míra vildi ekki hlusta og hún gerði lítið úr þessu öllu við Samír. Innst inni vissi hún að þetta gat ekki gengið svona áfram. Hún yrði að tala við hann og segja honum eins og var. En hún gerði það ekki. Hún var of hrædd um að missa hann, hrædd um að hann vildi hana ekki ef hún væri of óvenjuleg. Hún reyndi að láta þetta ganga upp, en þegar á leið varð það of erfitt. Hún varð að velja á milli þess að vera verndari þorpsins og venjuleg ung kona sem vildi stofna fjölskyldu.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvað var erfitt fyrir Míru sem verndara þorpsins?
2. Hvað vildi Míra vera?
3. Hvernig var sambandi Míru og Samírs háttað?
4. Af hverju vildi Míra ekki segja Samír frá skyldum sínum sem verndara þorpsins?