Námsefni þetta er einkum hugsað fyrir nemendur í efstu bekkjum grunnskóla og fyrstu bekkjum framhaldsskóla. Hentar það líka vel þeim sem vilja bæta sig almennt í ensku, hvort heldur hlustunarskilning, orðaforða eða almennan málskilning. Efnið er margskipt og hægt að nýta sér það á fjölbreyttan hátt. Grunnurinn er sagan sjálf, The Blockade Runners, og geta notendur valið um að lesa hana af vefnum, prentað hana út og lesið hana þannig eða hlustað á hana upplesna. Þá er tilvalið að sameina tvær leiðir, og lesa textann og hlusta á upplesturinn samtímis. Á vefsíðunni er einnig hægt að sækja vinnuhefti og kennslutillögur.