Hér er á ferðinni námsefni í íslensku hugsað fyrir 8.–10. bekk. Sagan Sæfarinn eftir Jules Verne er notuð sem útgangspunktur inn í víðáttur íslenskunnar sem og aðrar námsgreinar ef því er að skipta. Leggjum við mikla áherslu á að gera námsefnið skemmtilegt og aðlaðandi um leið og við fylgjum markmiðum aðalnámskrár eins vel og ítarlega og efnið gefur tök á. Við hvetjum alla til að kynna sér þetta efni vel, bæði kennara og nemendur, enda má nota það bæði sem almennt kennsluefni í bekk og/eða sem einstaklingsefni og hentar vel sem þjálfunarefni fyrir samræmt próf í íslensku. Sagan telur 30 kafla og að venju er bæði hægt að nálgast efnið í sérhannaðri vefútgáfu með upplestri og í útprentanlegri útgáfu með góðum verkefnum.
Í sögunni lætur Verne hetjur sínar ferðast í kafbáti um óravegu undirdjúpanna. Hafði slíkt aldrei verið gert og menn þekktu lítið til lífsins undir yfirborði sjávar. Hvatinn að sögunni var bréf sem annar þekktur rithöfundur sendi honum, frú George Sand. Í bréfinu hældi hún Verne á hvert reipi fyrir sögurnar Fimm vikur í loftbelg og Ferðina að miðju jarðar. Svo bætti hún við: „Ég vona svo bara að þú farir með okkur í svipað ferðalag um undirdjúpin og látir hetjur þínar ferðast þar um í einhvers konar neðansjávar köfunarbúnaði.“ Í kjölfarið skapaði Verne einn litríkasta byltingarforingja bókmenntanna þar sem Númi (Nemo) skipstjóri er. Sagan er þó mun meira en lýsingar á lífinu í undirdjúpunum. Í upphaflegu útgáfunni notaði Verne byltingu Pólverja gegn Rússlandi árið 1863. Þá var Númi pólskur aðalsmaður sem barðist gegn Rússum, en ekki indverskur. Þegar Hetzel, útgefandi Vernes, las bókina fyrst neitaði hann að gefa hana út, þar sem Frakkar höfðu þá nýlega gengið í bandalag með Rússum. Endurskoðaði Verne söguna nokkrum sinnum áður en hann og Hetzel ákváðu að láta verða af útgáfu hennar. Sagan hefur haft víðtæk áhrif, ekki síst fyrir persónusköpun, en Númi (Nemo) skipstjóri hefur t.a.m. verið fyrirmynd margra síðari tíma hetja og þá hafa raunverulegir kafbátar borið nafn þessa fyrirrennara síns, Nautilius.