Um söguna
Sagan Að löngum árum liðnum eftir Agnes M. Dunne fjallar um ungan mann, Alfred Banford, sem er af aðalsættum. Alfred og fjölskylda hans fá hjálp úr ólíklegustu átt þegar vagn þeirra bilar á heimleið. Í framhaldi fær Alfred hestasveininn sem hjálpaði þeim til að aðstoða sig við að koma móður sinni á óvart. Þau launa honum ríkulega en Alfred órar ekki fyrir því að hann muni nokkurn tímann hitta unga hestasveininn aftur, en enginn veit ævi sína fyrr en öll er. Að löngum árum liðnum er saga sem sýnir það að maður ætti ávallt að hjálpa þeim sem minna mega sín. Sagan er sniðin að íslenskukennslu fyrir 5.-7. bekk og að venju er hægt að nálgast hana í útprentanlegri útgáfu eða á vefsíðu ásamt gagnvirkum æfingum.