Lesskilningur er ný ritröð úr smiðju okkar á Skólavefnum þar sem boðið er upp á valda texta; þeir koma úr ýmsum áttum eins og sjá má á efnisyfirlitinu. Textarnir eru stuttir og þeim fylgja fjölvalsspurningar sem nemendur geta svarað gagnvirkt eða með því að krossa við svar á útprentuðu blaði.
Þeir textar sem nú birtast eru ætlaðir unglingastigi og innihald þeirra valið með tilliti til þess. Á næstu mánuðum munu svo bætast við bækur sem ætlaðar eru yngri nemendum á grunnskólastiginu.
Er þessi ritröð hugsuð sem viðbót við annað efni og megináherslan er fyrst og fremst að þjálfa lesskilning.
Hér er um tilraunaútgáfu að ræða og þætti okkur vænt um að fá að vita hvað ykkur finnst um þetta efni og þá hvað mætti betur fara.
Sendu fyrirspurn á skolavefurinn@skolavefurinn.is til að fá lausnir við spurningunum.
Með kennaraaðgangi geta kennarar skóla sem eru í áskrift haft aðgang að öllu efni skólavefsins, jafnt innan skóla sem heimanfrá. Auk þess gefur það kennurum möguleika á að hafa yfirlit yfir stöðu og árangur þeirra nemenda sinna sem hafa farið í gegnum gagnvirkar æfingar á Skólavefnum.
Sendu okkur línu um hvað þér finnst um þetta efni: skolavefurinn@skolavefurinn.is
Hér er um tilraunaútgáfu að ræða og þætti okkur vænt um að fá að vita hvað ykkur finnst um þetta efni og þá hvað mætti betur fara.
Allar fyrirspurnir fara á skolavefurinn@skolavefurinn.is