Veistu svarið?
Gagnvirkur spurningaleikur
Veistu svarið er gagnvirkur spurningaleikur sem hentar fyrir allar tölvur og síma. Þú smellir á flokk og færð 10 spurningar í þeim flokki. Þegar þú hefur lokið þeim getur þú smellt á annan flokk eða sama flokkinn og fengið aftur tíu spurningar. Athugið að spurningarnar veljast handahófskennt þannig að þú getur fengið sömu spurningarnar aftur, en það er bara betra.
Veistu svarið er einfaldur og gagnvirkur spurningaleikur sem hentar fyrir allar tölvur og síma. Hann er fyrst og fremst hugsaður til þjálfunar; að hjálpa nemendum að tileinka sér ákveðin þekkingaratriði og festa þau í minni. Þá leggjum við mikið upp úr því að hann sé skemmtilegur. Efnið eða spurningarnar taka einkum mið af námi í grunnskóla en við munum svo bjóða upp á fleiri flokka bæði sem tengjast náminu beint og sem efla almennan fróðleik.