Hér er á ferðinni stutt saga eftir skáldið og rithöfundinn Jóhann Hjálmarsson sem nefnist Allir og Enginn. Er þetta skemmtilegt ævintýri í fimm köflum þar sem segir frá landi sem á sér engin landamæri og er í raun ekki til. Íbúar þess heita Allir og Enginn. Sagan hefur einungis einu sinni áður birst á prenti, en það var í Lesbók Morgunblaðsins árið 1965. Var hún þá myndskreytt af listamanninum Alfreð Flóka og fylgja þær myndskreytingar sögunni hér.