Um þetta efni
Kóngurinn í Gullá er fyrst og fremst hugsuð sem lestrarbók og getur hún átt við alveg frá 4. og upp í 10. bekk ef út í það er farið. Er þetta ein af þessum sögum sem henta bæði fyrir börn og fullorðna.
Eins og annað efni sem Skólavefurinn gefur út er bæði hægt að prenta efnið út og/eða vinna það algjörlega á vefnum. Í vefútgáfunni er hægt að hlusta á söguna upplesna og þar er einnig hægt að nálgast orðskýringar á völdum orðum.
Góð verkefni fylgja bókinni, bæði opnar spurningar og fjölvalsspurningar.
John Ruskin skrifaði söguna Kóngurinn í Gullá (The King of the Golden River) árið 1841 fyrir hina tólf ára gömlu Effie (Euphemia) Gray sem síðar varð kona hans. Sagan var gefin út á bók tíu árum síðar (1851) og naut strax mikilla vinsælda og þykir í dag ein af sígildum bókmenntaverkum Viktoríutímans. Sagan hefur verið flokkuð sem ævintýri, dæmisaga, kennisaga og jafnvel goðsaga. Hvernig svo sem menn vilja flokka hana þá vísar sagan okkur veginn til réttrar breytni og hugarfars.
Höfundurinn John Ruskin (1819-1900) var á sínum tíma áhrifamikill rithöfundur og samfélagsrýnir sem hafði áhrif á marga af kunnustu listamönnum sem þá voru uppi og margar skoðanir hans þóttu bæði nýstárlegar og byltingakenndar og ættu meira erindi í dag en þá. Merkilegur og áhugaverður maður. Sagan var fyrst gefin út á íslensku af Prentsmiðju Lögbergs í Winnipeg árið 1891 og var þá þýdd af Einari Hjörleifssyni Kvaran. Er þýðingu Einars hér fylgt að mestu en málfar þó töluvert einfaldað og fært að nútímanum.