Hér bjóðum við upp á hina sígildu sögu af Tuma þumli í þýðingu Þorsteins Erlingssonar, en ritháttur á stöku stað færður til nútímans. Þetta er hin sígilda saga um drenginn Tuma sem er svo agnarlítill að hann er ekki hærri en þumalfingurinn á móður hans. Tumi er ákaflega forvitinn og lendir því í ótrúlegustu ævintýrum.
Sagan er boðin bæði í útprentanlegu formi með verkefnum og á vefsíðuformi með gagnvirkum æfingum. Sagan telur 14 kafla og tilvalin sem ítarefni.