Skólavefurinn.is

Ljóðasafnarinn

Veldu stig

Eggert Ólafsson

Matthías Jochumsson

Ljóð

Skólavefurinn.is

www.skolavefurinn.is

Þrútið var loft og þungur sjór,
þokudrungað vor.
Það var hann Eggert Ólafsson,
hann ýtti frá kaldri Skor.
 
Gamall þulur hjá græði sat,
geigur var svip hans í,
hann mælti við Eggert Ólafsson:
„Mér ógna þau vindaský.“
 
„Ég sigli ei skýin, ég sigli sjá!“
svaraði kappinn og hló;
„ég trúi á guð, en grýlur ei,
og gleð mig við reiðan sjó“.
 
Gamall þulur frá græði hvarf,
gegndi með þungri lund:
„Þú siglir ei þennan sjó í dag,
þú siglir á guðs þíns fund“.
 
Það var hann Eggert Ólafsson,
hann ýtti frá kaldri Skor,
vindur upp segl og sjálfur við stjórn
settist með formanns þor.
 
Á búlkanum situr brúður ung,
bleik var hin göfga kinn:
„Ó, Guð, sú báran er brött og há,
hún brotnar í himininn inn!“
 
„Hækkið þið seglin!“ hetjan kvað,
en Helja skjótari varð;
boðinn skall yfir bárumar, ‒
í búlkann var komið skarð.
 
Það var hann Eggert Ólafsson,
frá unnarjónum hann stökk
og niður í bráðan Breiðafjörð
í brúðar örmum hann sökk.
 
„Það var hann Eggert Ólafsson,“
‒ Íslands vættur kvað ‒ ;
„aldregi græt ég annan meir
en afreksmennið það“.
 
Ef þrútið er loftið, þungur sjór
og þokudrungað vor,
þú heyrir enn þá harmaljóð,
sem hljóma frá kaldri Skor.
 
Knúðu rastir knerrir tveir,
komið var rok um svið;
síðasti fugl úr fjarri Skor
flögraði´ á vinstri hlið.           

Verkefni

Skólavefurinn.is

www.skolavefurinn.is

1. Hvernig lýsir Matthías veðrinu í ljóðinu?
2. Nefnið dæmi um endurtekningar í ljóðinu. Hvaða tilgangi ætli þær þjóni?
3. Hvernig mynd dregur Matthías upp af Eggerti Ólafssyni?  Er hann hetja í augum hans eða er hann fífldjarfur ofláti sem hlýðir engri skynsemi?
4. Fyrir hvað var Eggert Ólafsson helst kunnur?
5. Nefndu nokkur atriði sem þér finnst einkenna ljóðið (t.d. endurtekningar sem skapa ákveðinn andblæ; samtöl og ólíkar skoðanir fólksins á ástandinu; hetjuandinn, guðstrú, hin lifandi náttúra, kenningar í anda fornskálda (myndmál) o.s.frv.).
6. Hvers konar ský eru vindaský?