Skólavefurinn.is

Ljóðasafnarinn

Veldu stig

Gluggar eru göt

Þórarinn Eldjárn

Ljóð

Skólavefurinn.is

www.skolavefurinn.is

Ég finn á öllu flöt 
við flest er ég dús: 
Gluggar eru göt 
sem gerð eru á hús.
 
Þeir hleypa inn lofti og ljósi 
og leyna ekki á sér. 
En til þess að fólk ekki frjósi 
er fínt að setja í þá gler.

Verkefni

Skólavefurinn.is

www.skolavefurinn.is

1. Hvað finnur Þórarinn á öllu?
2. Við hvað er hann dús?
3. Hvað eru gluggar samkvæmt því sem skáldið segir?
4. Hverju hleypa gluggar inn?
5. Hvað þarf að gera svo fólk frjósi ekki?
6. Hvaða orð í ljóðinu rímar við ljósi?