Skólavefurinn.is

Ljóðasafnarinn

Veldu stig

Heimþrá

Jóhann Sigurjónsson

Ljóð

Skólavefurinn.is

www.skolavefurinn.is

Reikult er rótlaust þangið,
rekst það um víðan sjá,
straumar og votir vindar
velkja því til og frá.
 
Fuglar flugu yfir hafið
með fögnuði og vængjagný,
‒ hurfu út í himinblámann
hratt eins og vindlétt ský.
 
Þangið, sem horfði á hópinn,
var hnípið allan þann dag. –
Bylgjan, sem bar það uppi,
var blóðug um sólarlag.

 

                                               Prentað í Skírni, 1910.

Verkefni

Skólavefurinn.is

www.skolavefurinn.is

1.  Um hvað er fjallað í ljóðinu?
2.  Hvaða þang er höfundur að tala um?
3.  Fyrir hvað ætli fuglarnir standi í ljóðinu?
4.  Af hverju verður bylgjan blóðug í lokin?