Skólavefurinn.is

Ljóðasafnarinn

Veldu stig

Lofsöngur

Matthías Jochumsson

Ljóð

Skólavefurinn.is

www.skolavefurinn.is

Ó, guð vors lands! Ó, lands vors guð!
Vér lofum þitt heilaga, heilaga nafn!
Úr sólkerfum himnanna hnýta þér krans
þínir herskarar, tímanna safn.
Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár
og þúsund ár dagur, ei meir:
eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár,
sem tilbiður guð sinn og deyr.
Íslands þúsund ár,
Íslands þúsund ár,
eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár,
sem tilbiður guð sinn og deyr.

 

Verkefni

Skólavefurinn.is

www.skolavefurinn.is

1. Útskýrðu braglínurnar:  Úr sólkerfum himnanna hnýta þér krans/ þínir herskarar, tímanna safn.
2. Er einhver munur á merkingu setninganna: Ó, guð vors lands og Ó, lands vors guð?
3. Finndu rímorðin í ljóðinu.
4. Hvernig má útskýra hugmyndina: Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár og þúsund ár dagur, ei meir?
5. Hvað merkir smáblómið í ljóðinu?