Skólavefurinn.is

Ljóðasafnarinn

Veldu stig

Tumi fer á fætur

Freysteinn Gunnarsson

Ljóð

Skólavefurinn.is

www.skolavefurinn.is

Hann Tumi fer á fætur
við fyrsta hanagal
að sitja yfir ánum
lengst inni í Fagradal.
 
Hann lætur hugann líða
svo langt um dal og fjöll,
því kóngur vill hann verða
í voða stórri höll.
 
Og Snati hans er hirðfífl
og hrútur ráðgjafinn,
og smalahóll er höllin.
En hvar er drottningin?

Verkefni

Skólavefurinn.is

www.skolavefurinn.is

1. Hvenær fer Tumi á fætur?
2. Hvað fer Tumi að gera?
3. Hvar situr hann yfir ánum?
4. Tumi lætur hugann reika. Hvað vill hann verða?
6. Hvert er hlutverk Snata í þessari ímynduðu veröld?
7. Hvað á hrúturinn að gera?
8. Hvað er það sem Tuma vantar?