Skólavefurinn.is

Ljóðasafnarinn

Veldu stig

Vísur Vatnsenda-Rósu

Rósa Guðmundsdóttir

Ljóð

Skólavefurinn.is

www.skolavefurinn.is

Augað mitt og  augað þitt, 
og þá fögru  steina 
mitt er þitt og  þitt er mitt, 
þú veist, hvað  eg meina.
 
Trega eg þig  manna mest 
mædd af tára  flóði, 
ó, að við hefðum  aldrei sést, 
elsku vinurinn  góði.
 
Langt er síðan  sá eg hann, 
sannlega fríður  var hann, 
allt, sem prýða  mátti einn mann, 
mest af lýðum  bar hann.
 
Engan leit eg  eins og þann 
álma hreyti bjarta. 
Einn guð veit eg  elskaði hann 
af öllum reit  míns hjarta.
 
Þó að kali  heitan hver, 
hylji dali jökull  ber, 
steinar tali og  allt, hvað er, 
aldrei skal ég  gleyma þér.
 
Augað snart er  tárum tært, 
tryggð í partast  mola, 
mitt er hjartað sárum  sært, 
svik er hart að  þola.
 
Bestan veit eg  blóma þinn, 
blíðu innst í  reitum. 
Far vel,  Eyjafjörður minn, 
fegri öllum  sveitum.

Verkefni

Skólavefurinn.is

www.skolavefurinn.is

1. Af hverju er Rósa mædd?
2. Af hverju óskar hún þess að þau hefðu aldrei sést?
3. Hvernig lýsir Rósa þessum manni sem hún elskar?
4. Hvað má gerast áður en hún gleymir honum?
5. Hvaða sveit finnst henni fegurst og af hverju ætli það sé?