English Reading Comprehension I er önnur bókin í nýjum bókaflokki okkar á Skólavefnum þar sem við einbeitum okkur að lesskilningi í ensku. Í þessari bók er boðið upp á 21 lestexta úr ýmsum áttum sem bæði er hægt að prenta út og vinna gagnvirkt á vefnum.
Prentútgáfan samanstendur af textum með opnum spurningum og fjölvalsspurningum. Geta kennarar og nemendur valið að nota aðra hvora spurningagerðina eða báðar. Þá er merkt við þau orð sem skýrð eru út á vefnum.
Í vefútfáfunni er boðið upp á orðskýringar og fjölvalsspurningar. Orðskýringarnar eru þannig útbúnar að nemandinn færir bendilinn yfir valin orð sem eru undirstrikuð og þá birtist skýring á orðinu. Fjölvalsspurningarnar með vefútgáfunni eru tvenns konar, annars vegar efnisspurningar og hins vegar orðaforðaspurningar.
Já, hér er á ferðinni nýtt og vandað efni sem getur annað hvort hentað sem námsefni inni í bekkjum eða sem leið fyrir einstaklinga til að bæta sig í ensku.