Athugið:
Þessi
markmið og gátlistar eru sá grunnur sem við á Skólavefnum vinnum eftir í okkar
námsefnisgerð í íslensku. Hann byggist á Aðalnámskrá grunnskóla auk þess sem
stuðst hefur verið við bekkjarnámskrár ýmissa skóla.
Aðalnámskráin
er góður stýrigrunnur og tekur fyrir heildræn markmið um það hvað nemendur eiga
að læra og hafa á valdi sínu að loknu námi, en þar er ekki farið ítarlega í
einstaka efnisþætti. Er sú vinna eftirlátin skólunum sjálfum og gefur hún þeim
um leið kost á ákveðnu frelsi í yfirferð; þeir geta þá til dæmis lagað kennslu
sína að ákveðnu námsefni og eigin áherslum.
Skólavefurinn
hefur nú útbúið heildstætt námsefni í íslensku fyrir öll stig grunnskólans. Til
þess að auðvelda kennurum yfirsýn um námsefni okkar í íslensku töldum við
æskilegt að setja fram þessi markmið og gátlista yfir þau atriði sem við teljum
mikilvæg í hverjum árgangi. Til einföldunar og stuðnings bendum við auk þess
gjarnan á aðferðir og leiðir til þjálfunar.
Það
má því komast svo að orði að það sem hér er sett fram jafngildi skólanámskrá á
grunni Aðalnámskrár. Námsefnið velja síðan kennararnir sjálfir en okkur á
Skólavefnum er það ánægjuefni að geta bent á að æ fleiri skólar hafa á síðustu
misserum talið sér hag í að nýta sér það heildstæða námsefni í íslensku sem við
höfum á boðstólum.
Það
skal tekið fram að þessi markmið ná einungis yfir þau atriði sem við teljum
okkur geta prófað úr gagnvirkt með beinni svörun.