Kaflar

1. Um söguna

Frankenstein eftir Mary Wollstonecraft Shelley er sennilega ein þekktasta hryllingssaga sem skrifuð hefur verið, en þó flestum sé nafnið tamt í munni eru kannski færri sem þekkja söguna eins og hún birtist fyrst árið 1818.
Mary Shelley fæddist árið 1797. Móðir hennar Mary Wollstonecraft var talin einn helsti frumkvöðull í baráttu kvenna á sínum tíma í Bretlandi og víðar og eftir hana liggja margar bækur bæði skáldverk, sagnfræði og heimspeki. Best er hún þó þekkt fyrir bókina A Vindication of the Rights of Women sem útleggja mætti á íslensku sem Réttlæting fyrir réttindum kvenna þar sem hún heldur því fram að konur séu á engan hátt óæðri körlum, en slæm staða þeirra sé einungis því að kenna að þær skorti menntun á við karla. Hún vildi fullkomið jafnrétti kynjanna og boðaði samfélag sem byggði á skynseminni einni saman. Þó svo að kröfur hennar þyki sjálfsagðar í dag voru þetta mjög róttækar skoðanir á þeim tíma.
Faðir Mary Shelley var hinn kunni heimspekingur og rithöfundur William Godwin sem vildi umbylta samfélagsmunstrinu og boðaði nytjahyggju og anarkisma (stjórnleysi) sem bestu lausnina fyrir mannkynið.
Móðir Mary Shelley lést einungis 11 dögum eftir að dóttirin fæddist og kom það í hlut föður hennar að ala hana upp. Hann sá til þess að hún hlyti góða menntun og hvatti hana til að hugsa sjálfstætt og vera gagnrýnin á ríkjandi gildi.
Sjálfstæði sitt sýndi Mary strax sextán ára gömul er hún hóf ástarsamband við rómantíska skáldið Percy Bysshe Shelley sem var pólitískur lærisveinn föður hennar. Shelley var þá kvæntur annarri konu en til að þau Mary gætu verið saman flúðu þau til meginlands Evrópu. Percy og Mary giftust árið 1816 og voru saman þangað til Percy drukknaði árið 1822.
Sagan Frankenstein var fyrsta skáldverk Mary og varð þannig til að þau hjónin dvöldu um tíma í Sviss við Genfarvatn árið 1816 og eyddu miklum tíma með skáldinu Byron lávarði sem dvaldi í nærliggjandi húsi. Eitt sinn er þau höfðu drepið tímann við að lesa draugasögur stakk Byron upp á því að þau skyldu öll semja einhvers konar hryllingssögu ólíka þeim sögum sem áður höfðu verið skrifaðar. Ekkert er vitað um hvort mennirnir tveir hafi staðið við sitt, en Mary tók þá á orðinu og úr varð þessi saga sem lifir enn góðu lífi í dag.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?