Í dag bætum við inn 5 nýjum liðum. Semsagt, í heild eru komnir níu liðir: Ár Íslands, jöklar, eyjar, stöðuvötn, þéttbýiisstaðir, ýmsir merkir staðir, fjöll, nes og skagar, og að lokum firðir, flóar og víkur.
Kortakíkirinn er skemmtileg nýjung beint úr smiðju okkar á Skólavefnum. Þar bjóðum við upp á skemmtilega vinnu með kort. Vefurinn er tvískiptur og skiptist í svokallað sögukort og gagnvirka æfingu. Sögukortið segir frá ákveðnum stöðum og sýnir hvar þeir eru á kortinu, en gagnvirka æfingin felst svo í því að geta sagt til um staði á korti. Þannig ættu staðirnir að festast betur í minni. Já það er mikilvægt að við séum læs á landið okkar.