Nú bjóðum við upp á námsefnið um Artúr konung í nýrri og endurbættri útgáfu. Sagan segir frá hinum kunna konungi Artúri sem á að hafa ríkt í Englandi á 6. öld.
Hér er um að ræða efni sem þjálfar lestur og lesskilning auk annarra þátta íslenskunnar. Hverjum kafla fylgja spurningar og valin málfræði- og málnotkunarverkefni sem taka mið af námskrá í íslensku. Lestrarvinnubókin er hugsuð fyrir nemendur í 3. til 5. bekk grunnskólans.
Þetta vandaða efni er hægt að nálgast í vefútgáfu með upplestri og gagnvirkum æfingum, eða í útprentanlegri lestrarvinnubók.
Lausnahefti má nálgast með því að senda tölvupóst á skolavefurinn@skolavefurinn.is.