Ódysseifskviða

Vefbók

Ódysseifskviða

18 kaflar

Inngangur

Þessi stytta og einfaldaða útgáfa af Ódysseifskviðu er fyrst og fremst gerð með það fyrir augum að kynna nemendum þetta stórbrotna verk, þessa miklu arfleifð sem við búum að. Það er alls ekki sjálfgefið að geta lesið og skemmt sér við nærri 3000 ára gamlan bókmenntatexta.

Það er hreint með ólíkindum að þessi saga, ásamt Ilíonskviðu, hafi fangað huga fólks fram á þennan dag en það er einmitt það sem hún hefur gert. Rithöfundar hafa sótt í þennan arf og skapað út frá honum stórbrotin listaverk. Af slíkum verkum má t.a.m. nefna Ulysses eftir James Joyce (1922), The Silence of the Girls eftir Pat Barker (2018), Circe eftir Madeline Miller (2018) og Cold Mountain eftir Charles Frazier (1997) svo örfá verk séu nefnd.

Myndlistarmenn hafa einnig sótt innblástur til Ódysseifskviðu frá ómunatíð. Og ekki má gleyma kvikmyndum og sjónvarpsþáttum sem byggðir eru á sögunni. Þar ber hæst kvikmyndina Ulysses frá árinu 1955 með þeim Kirk Douglas og Silvönu Mangano í aðalhlutverkum og The Odyssey frá 2026 með Matt Damon, Anne Hathaway og Tom Holland í aðalhlutverkum.

Þetta er tímalaust ævintýri sem allir finna sig í enda viðfangsefnið sígilt: það að finna sér sinn stað í heiminum.

Við höfum útbúið efnið sem þjálfunarefni í lestri og lesskilningi. Já, það getur sannarlega verið eftirsóknarvert að þjálfa lestur og upplifa þessa mögnuðu sögu í leiðinni.

Efnið má nálgast í ólíkum útgáfum að venju. Hægt er hægt að prenta það út í heild sinni eða lesa það beint af vefnum, allt eftir því hvað hver og einn vill.

Ítarefni

Vefbókinni fylgir eftirfarandi viðbótarefni.

Vefbók

18 kaflar

Smelltu á kafla til að hefja lestur.