Þetta efni er hugsað til þjálfunar í lestri og lesskilningi fyrir þá nemendur sem hafa áhuga á að nýta lesturinn til almenns fróðleiks og þekkingarauka. Það er ekki eyrnamerkt neinum tilteknum aldurshópi og verður hver að meta fyrir sig hvort textinn henti.
Rétt er að vekja athygli á því að hér koma fyrir mörg erlend nöfn og heiti sem margir gætu átt erfitt með, en æfingin skapar jú meistarann. Í því sambandi er einnig hægt að hlusta á hvern kafla upplesinn.
Efnið er byggt á bók bandaríska sagnfræðingsins Hendrik Willem van Loon (1882–1944) sem í mjög frjálslegri íslenskri þýðingu mætti útleggja sem Stutt saga landafundanna frá fyrstu tíð fram til þess að nýi heimurinn uppgötvast, en með nýja heiminum er átt við Ameríku.
Kaflarnir eru 51 talsins og hverjum kafla fylgja spurningar sem tilvalið er að skoða. Með því að svara spurningum úr efninu festum við okkur innihald textans betur í minni.