Tungumálakrossgátur og fleira

Forsíða: Tungumálakrossgátur og fleira — rúðustrikað blað með teikningum af epli, ketti, blýanti, húsi, skó, strætó, blómum, hjóli og skólatösku.

Krossgátur eru skemmtileg leið til að glíma við orð og þjálfa sig í nýjum tungumálum. Þá eru þær góð leið til að þjálfa stafsetningu og bæta við sig orðaforða.

Hér höfum við útbúið krossgátur til þjálfunar í íslensku þar sem unnið er út frá fjórum tungumálum: dönsku, litháísku, pólsku og úkraínsku.

Í dönsku ganga krossgáturnar í báðar áttir, þ.e. ein bók þar sem nemendur eiga að finna íslensk orð við danskar vísbendingar og önnur þar sem nemendur eiga að finna dönsk orð við íslenskar vísbendingar.

Í hinum tungumálunum, þ.e. litháísku, pólsku og úkraínsku, eiga nemendur einungis að finna lausnir á íslensku. Boðið er upp á tvær bækur í hverju tungumáli sem hvor hefur að geyma 10 krossgátur en auk þeirra eru æfingar í orðaleit og að tengja saman orð út frá sömu orðalistum. Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur vel þetta efni enda góð leið til þjálfunar.

Krossgáturnar eru þematengdar og má sjá þemun í efnisyfirlitinu.

Prófaðu eina

Svona virka bækurnar: vísbendingin er á móðurmálinu, lausnin á íslensku. Hér er ein vísbending úr hverju tungumáli.

Lárétt

Lóðrétt

1 lárétt: sko, á dönsku. 4 stafir.

 

Lietuvių

Úr litháísku yfir í íslensku

Vísbendingar á litháísku, lausnir á íslensku. Tvær sjálfstæðar bækur með ólíkum þemum.

Kápa: kryžiažodžiai ir kita, litháíska/íslenska, bók 1

Litháíska–íslenska · Bók 1

kryžiažodžiai ir kita

Tíu þematengdar krossgátur, orðaleit og tengiæfingar. 45 blaðsíður.

Kápa: kryžiažodžiai ir kita, litháíska/íslenska, bók 2

Litháíska–íslenska · Bók 2

kryžiažodžiai ir kita

Tíu þematengdar krossgátur, orðaleit og tengiæfingar. 45 blaðsíður.

Polski

Úr pólsku yfir í íslensku

Vísbendingar á pólsku, lausnir á íslensku. Tvær sjálfstæðar bækur með ólíkum þemum.

Kápa: krzyżówki i więcej, pólska/íslenska, bók 1

Pólska–íslenska · Bók 1

krzyżówki i więcej

Tíu þematengdar krossgátur, orðaleit og tengiæfingar. 45 blaðsíður.

Kápa: krzyżówki i więcej, pólska/íslenska, bók 2

Pólska–íslenska · Bók 2

krzyżówki i więcej

Tíu þematengdar krossgátur, orðaleit og tengiæfingar. 45 blaðsíður.

Українська

Úr úkraínsku yfir í íslensku

Vísbendingar á úkraínsku, lausnir á íslensku. Tvær sjálfstæðar bækur með ólíkum þemum.

Kápa: кросворди, úkraínska/íslenska, bók 1

Úkraínska–íslenska · Bók 1

кросворди

Tíu þematengdar krossgátur, orðaleit og tengiæfingar. 45 blaðsíður.

Kápa: кросворди, úkraínska/íslenska, bók 2

Úkraínska–íslenska · Bók 2

кросворди

Tíu þematengdar krossgátur, orðaleit og tengiæfingar. 45 blaðsíður.

Dansk

Danska í báðar áttir

Tvær bækur sem spegla hvor aðra. Lausnir eru birtar hér á vefnum.

Kápa: Tungumálakrossgátur og fleira — Danskt yfir í íslenskt

Danska–íslenska

Danskt yfir í íslenskt

Sautján þematengdar krossgátur. Danskar vísbendingar, íslensk svör. 39 blaðsíður.

Kápa: Tungumálakrossgátur og fleira — Íslenskt yfir í danskt

Íslenska–danska

Íslenskt yfir í danskt

Sautján þematengdar krossgátur. Íslenskar vísbendingar, dönsk svör. 39 blaðsíður.

Lausnir

Senda beiðni á skolavefurinn@skolavefurinn.is

Efnið er ætlað til útprentunar og frjálsra afnota í kennslu. Þemun eru talin upp í efnisyfirliti hverrar bókar.