Kaflar
1934: Adolf Hitler kemst til valda í Þýskalandi

Árið 1921 varð Adolf Hitler leiðtogi Þjóðernisflokksins í Þýskalandi. Árið 1923 reyndi flokkur hans að ná völdum í Þýskalandi með uppreisn sem var brotin á bak aftur. Hitler var dæmdur í fimm ára fangelsi en afplánaði einungis 9 mánuði. Í fangelsinu skrifaði hann stefnuskrá sína Mein Kampf þar sem m.a. kemur fram hatur hans á gyðingum og kommúnistum.
Laus úr fangelsi hóf hann áróðursstríð og fylgi hans óx jafnt og þétt. Þá var mikil fátækt í Þýskalandi ekki síst vegna stríðsskaðabótanna.
Árið 1932 bauð Hitler sig fram til forseta gegn Paul von Hindenburg. Tapaði hann kosningunum.
Á þessum tíma hafði Hitler á að skipa harðsvíruðum hópi fylgismanna sem svifust einskis og tóku lögin í sínar hendur. Réðust þeir á kommúnista og gyðinga á götum úti og lögreglan fékk við ekkert ráðið.
Í næstu kosningum hlutu nasistar mikið fylgi og Hitler var gerður að kanslara árið 1933. Bakvið tjöldin var Hitler alltaf að styrkja stöðu sína, og með nýfengið vald kanslara lét hann handtaka kommúnista og gyðinga og varpa þeim í fangelsi. Þegar Hindenburg dó 1934 tók Hitler sér alræðisvald.