Kaflar
1933: Ýmislegt

Annan mars árið 1933 var kvikmyndin King Kong frumsýnd í New York. Bauð hún upp á ýmsar tækninýjungar sem ekki höfðu áður sést.
Franklin D. Roosevelt varð þrítugasti og annar forseti Bandaríkjanna þann 4. mars 1933. Hann fékk það erfiða verkefni að glíma við afleiðingar kreppunnar miklu og þótti leysa það vel. Í frægri innsetningarræðu sagði hann: „Það eina sem við þurfum að óttast er óttinn sjálfur.“
Þann 22. mars 1933 voru útrýmingarbúðir nasista í Dachau teknar í notkun. Þær voru hugsaðar fyrir alla pólitíska andstæðinga nasista. Þann tuttugasta og fyrsta júní sama ár voru svo allir stjórnmálaflokkar bannaðir í Þýskalandi fyrir utan flokk nasista.
Gandhi hóf þriggja vikna hungurverkfall sitt áttunda maí 1933 til að vekja athygli á illri meðferð þeirra lægst settu í indversku samfélagi.
Vísindamaðurinn og Þjóðverjinn Albert Einstein ákvað að setjast að í Bandaríkjunum í október 1933 þar sem hann var þá staddur í heimsókn. Ástæðan var sú að Adolf Hitler hafði náð völdum í Þýskalandi.
Skáldsagan The Shape of things to come eftir H.G. Wells kom út 1933. Er það framtíðarsaga sem segir frá tilraun til að byggja upp nýja Evrópu eftir stríð sem skildi álfuna eftir í rúst. Þar á að rísa tæknivætt friðsamlegt samfélag þar sem öll trúarbrögð eru gerð útlæg. Áhugaverð saga sem endar árið 2016.