Kaflar

1901: Marconi sendir fyrstu útvarpsskilaboð milli landa

Upp úr miðri nítjándu öld kom skoski stærðfræðingurinn James Clerk Maxwell (1831-1879) fram með hugmyndir um útvarpsbylgjur sem áttu eftir að breyta heiminum. Því hefur verið haldið fram að hugmyndir Maxwells hafi lagt grunninn að stærstu framförum í vísindum tuttugustu aldar og að bæði Isaac Newton og Albert Einstein hafi átt honum mikið að þakka. Það var svo árið 1886 sem Þjóðverjinn Heinrich Hertz sannaði tilvist útvarpsbylgja.
Í kjölfarið héldu rannsóknir áfram, og árið 1897 sendi ítalski uppfinningamaðurinn Guiglielmo Marconi fyrstu þráðlausu sendinguna með útvarpsbylgjum. Árið 1900 heppnaðist Þjóðverjanum Reginald Fessenden fyrstum allra að flytja rödd með útvarpsbylgjum milli staða og í desember 1901 tókst Marconi að senda skilaboð frá Bretlandi til Nýfundnalands.  Það var svo árið 1906 að Reginald Fessenden tókst fyrstum manna að láta tónlist hljóma með útvarpsbylgjum. Það var Largo eftir Georg Friedrich Händel.
Skipulagðar útsendingar útvarps eins og við þekkjum það hófust svo fyrst í Argentínu árið 1920 og nokkrum árum síðar var útvarpið komið út um allt.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvaða hugmynd kom James Clerk Maxwell fram með um miðja nítjándu öld?
2. Hver sannaði fyrstur tilvist útvarpsbylgja?
3. Hvenær var fyrsta þráðlausa sendingin með útvarpsbylgjum?
4. Hver á heiðurinn af fyrstu þráðlausu sendingunni með útvarpsbylgjum?
5. Hvað tókst Marconi að gera árið 1901?
6. Hvað tókst Þjóðverjanum Reginald Fessenden fyrstum manna?
7. Hvaða tónverk hljómaði fyrst eftir útvarpsbylgjum?
8. Hvenær hófust fyrstu skipulögðu útvarpsútsendingar í heiminum?
9. Hvar hófust fyrstu skipulögðu útvarpsútsendingar í heiminum?