Kaflar

1902: Fyrsta geimvísinda-kvikmyndin frumsýnd

Fyrsta kvikmyndin sem byggðist á geimvísindum var frönsk og nefndist Le Voyage dans la Lune eða Fer˙ðin til tunglsins.  Leikstjóri hennar var hinn franski Georges.
Í kvikmyndinni fylgjumst við með nokkrum geimförum sem ferðast í lítilli flaug sem skotið er með fallbyssu til tunglsins. Rannsaka þeir yfirborð tunglsins en verða svo fyrir atlögu frá Selenítum, en svo nefnast íbúar tunglsins í myndinni. Komast þeir undan á flótta og hafa með sér einn úr liði Seleníta. Aðalleikari myndarinnar var leikstjórinn sjálfur sem leikur einn geimfaranna.
Leikstjórinn sagði að hann hefði verið undir áhrifum frá skáldsögunni Frá Jörðu til tunglsins eftir franska rithöfundinn Jules Verne sem kom út árið 1865.
Þótti þetta framtak mjög merkilegt á þeim tíma en Méliés var þrjá mánuði að ljúka myndinni og kostaði hún um 10.000 franka í framleiðslu. Hægt er að sjá myndina á Youtube.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hverrar þjóðar var Georges Méliés?
2. Hvað hét fyrsta geimvísindakvikmyndin?
3. Hvað er langt síðan fyrsta geimvísindakvikmyndin leit dagsins ljós?
4. Hvað var notað í kvikmyndinni Le Voyage dans la Lune til að koma fólkinu til tunglsins?
5. Hvað kölluðust íbúar tunglsins í myndinni?
6. Til hvaða rithöfundar sótti leikstjórinn áhrif við gerð kvikmyndarinnar?
7. Hvað tók langan tíma að gera myndina?
8. Hvað kostaði kvikmyndin í framleiðslu?