Kaflar
1969: Menn lenda á tunglinu

Árið 1970 sigraði Salvador Allende í kosningum í Síle og varð fyrsti marxíski leiðtoginn til að vinna lýðræðislegar kosningar í Suður-Ameríku. Vonuðust landsmenn til að Allende gæti bætt slæm lífskjör þeirra.
Þremur árum síðar hafði ástandið þó versnað. Þá gerði yfirmaður hersins Augosto Pinochet uppreisn. Þann 11. september hélt Allende sína lokaræðu til landsmanna áður en hann tók eigið líf.
Pinochet ríkti í landinu með aðstoð hersins allt til ársins 1988 er hann tapaði í kosningum. Pinochet stjórnaði með harðri hendi og var talinn hafa tekið marga af sínum andstæðingum af lífi án dóms og laga. Tíu árum síðar var Pinochet kærður fyrir glæp gegn mannkyninu en dó árið 2006 áður en málið komst lengra.