Kaflar

1968: Mótmæli / 68 kynslóðin

Eftir að Frakkar voru flæmdir burt frá Indókína var Víetnam skipt í Suðu- og Norður Víetnam. Í Norður-Víetnam réðu kommúnistar undir Ho Chi Minh en í suðri réði ríkjum einræðisherrann Ngo Dinh Diem. Var Suður-Víetnam stutt af Bandaríkjamönnum sem vildu hefta útbreiðslu kommúnisma á svæðinu. Kínverjar studdu Norður-Víetnama. Má segja að ríkt hafi borgarastyrjöld í Suður-Víetnam en margir vildu fella stjórnina þar og sameinast norðrinu.
Lengi vel tóku Bandaríkjamenn ekki beinan þátt í átökunum en árið 1965 sendu þeir hermenn til landsins til að berjast með Suður-Víetnömum gegn Norður-Víetnömum.
Magnaðist þetta upp í heiftúðugt stríð og á skömmum tíma höfðu Bandaríkjamenn sent 200.000 hermenn til að berjast þar en þrátt fyrir mun fullkomnari hergögn tókst ekki að vinna sigur á Norður-Víetnömum.  Náðu bardagar hámarki árið 1968. Urðu mikil mótmæli á Vesturlöndum við þessari innrás Bandaríkjamanna.
Lauk stríðinu ekki fyrr en árið 1975 með fullnaðarsigri Norður-Víetnama, og Víetnam varð eitt ríki.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hverju voru háskólanemar að mótmæla á Ítalíu veturinn 1967?

2. Hvernig brugðust yfirvöld við mótmælunum á Ítalíu 1967?

3. Hverju mótmæltu námsmenn í Bretlandi fyrir utan sendiráð Bandaríkjamanna árið 1967?

4. Að hvaða leyti voru mótmælin í Frakklandi ólík mótmælunum á Ítalíu og Bretlandi?

5. Til hvers leiddu mótmælin í Frakklandi?

6. Hverju eru þessi mótmæli talin hafa breytt?