Kaflar

1971: Idi Amin tekur völdin í Úganda

Afríkuríkið Úganda var nýlenda Breta frá 1894 til 1962 þegar ríkið varð sjálfstætt lýðveldi.  Í fyrstu kosningunum þar í landi varð Milton Obote forsætisráðherra og síðar einnig forseti frá 1966.
Tuttugasta og fimmta janúar árið 1971 gerði hershöfðinginn Idi Amin uppreisn og tók völdin í sínar hendur. Hófst þá ógnarstjórn í landinu sem stóð yfir til ársins 1979 þegar Amin var hrakinn frá völdum og Obote komst til valda á ný.
Amin var sannkallaður harðstjóri. Hann lét taka fjölda manns af lífi og hrakti tugi þúsunda úr landi.
Í október árið 1978 réðst hann inn í nágrannaríkið Tansaníu en mætti öflugri mótspyrnu tansaníska hersins sem var dyggilega studdur af hermönnum frá Úganda sem flúið höfðu ógnarstjórnina heimafyrir. Á endanum sneri her Tansaníu vörn í sókn og réðst inn í Úganda með þeim afleiðingum að Idi Amin lagði á flótta og lést í útlegð árið 2003.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hverjir stjórnuðu Úganda frá 1894-1962?

2. Hver varð fyrsti forsætisráðherrann Í Úganda?

3. Hver hrifsaði til sín völdin í Úganda árið 1971?

4. Hvað réð Idi Amin lengi ríkjum í Úganda?

5. Á hverja réðst Idi Amin árið 1978?