Kaflar
1972: Bangladesh verður til

Árið 1947 urðu Indland og Pakistan sjálfstæð ríki. Það sem var sérstakt við Pakistan var að það skiptist í tvennt, Vestur- og Austur Pakistan, og Indland aðskildi þessa tvo hluta ríkisins.
Árið 1970 urðu flóð í Austur-Pakistan mörgum íbúum að bana. Fannst fólki þar það fá litla sem enga hjálp frá stjórn landsins. Í kjölfarið hófust mikil mótmæli í Austur-Pakistan gegn stjórninni sem hafði aðsetur í Vestur-Pakistan. Forseti landsins brást við með því að senda mikinn her til Austur-Pakistan til að lægja mótmælaöldurnar.
Þetta leiddi til borgarastyrjaldar og létu margir lífið í þeim átökum. Leiðtogi mótmælenda Sheikh Mujib var handtekinn í mars 1971 en við það óx mótmælendum ásmegin og andstaðan gegn stjórninni varð meiri.
Margir hermenn Pakistana gerðust liðhlaupar og gengu í lið með mótmælendum. Flýðu yfir 10 milljón manna frá Austur-Pakistan til Indlands í átökunum. Varð þetta til þess að stríð braust út milli Indlands og Pakistan.
Sjötta desember 1971 viðurkenndi Indland nýtt ríki Austur-Pakistana, Bangladesh. Skömmu síðar gáfust Pakistanar upp og leystu Sheikh Mujib úr haldi. Varð hann fyrsti forsætisráðherra Bandladesh árið 1972.