Kaflar
2000: Pablo Picasso og Frida Kahlo

Það væri að æra óstöðuga að tala um alla þá listmálara sem settu svip á tuttugustu öldina, en við skulum skoða lítillega tvo sem höfðu mikil áhrif.
Spánverjinn Pablo Picasso (1881-1973) er talinn einn merkasti listmálari 20. aldar. Picasso kom fram með stefnu í málaralist sem kallast kúbismi en hann breytti þó um stíl nokkrum sinnum á ævinni. Eitt kunnasta verk hans er La Guernica sem hann málaði árið 1937, á tímum spænsku borgarastyrjaldarinnar. Margir telja það eitt kröftugasta málverk sögunnar þar sem deilt er á stríð.
Hin mexíkóska Frida Kahlo (1907-1954) var einnig frábær listmálari. Sjálfsmyndir voru einkennandi fyrir hana en einnig leitaði hún gjarnan í sögu þjóðar sinnar Mexíkó.
Eitt hennar kunnasta verk kallast Two Fridas (Fríðurnar tvær) sem hún málaði er hún stóð í skilnaði við mann sinn og sýnir annars vegar konuna sem maður hennar féll fyrir og hins vegar konuna sem hann skildi við. Frida glímdi við heilsuleysi og lést 47 ára gömul.