Kaflar
1999: Ýmislegt

Árið 1999 var viðburðaríkt en þá gerðist t.a.m. eftirfarandi:
Fyrsta janúar tók Evrópski seðlabankinn evruna upp sem gjaldmiðil. Í dag er evran opinber gjaldmiðill í 19 af 28 aðildarríkjum Evrópusambandsins. Þessi hópur ríkja er þekktur sem evrusvæðið og taldi um 343 milljónir borgara árið 2019. Evran er næststærsti gjaldmiðillinn á gjaldeyrismarkaði á eftir Bandaríkjadal.
Fyrsta júní fór vefsíðan Napster í loftið en þar gat fólk í fyrsta sinn skipst á tónlist á netinu. Þetta var þó ólöglegt því listafólkið fékk engar greiðslur fyrir. Í kjölfarið spruttu upp fleiri slíkar síður en í kringum 2010 var þetta ólöglega niðurhal stöðvað.
Þann 17. ágúst varð jarðskjálfti að styrkleikanum 7,6 á Richter-kvarðanum nærri borginni Izmit í Tyrklandi. Afleiðingarnar voru skelfilegar en talið er að á milli sautján og átján þúsund manns hafi látist af hans völdum.
Þann þriðja desember varð Tori Murden fyrst kvenna til að sigla yfir Atlantshafið á árabát. Það tók hana 81 dag að fara þessa 5486 kílómetra frá Kanaríeyjum til Guadeloupe eyja sem liggja á mörkum Atlantshafs og Kyrrahafs.
Þrítugasta og fyrsta desember sagði Boris Jeltsin af sér sem forseti Rússlands og forsætisráðherrann Vladimir Pútín tók við.