Kaflar

14. Persónur Gunnlaugs sögu ormstungu og tengsl þeirra

Þorsteinn Egilsson á Borg á Mýrum. Mikill höfðingi. Draumur hans um fuglana í upphafi sögu bregður ljósi yfir alla söguna. Þorsteinn tekur Gunnlaug að sér og kennir honum lögspeki og reynist honum vel.
Jófríður. Kona Þorsteins á Borg. Hún virðir að vettugi skipun manns síns um að bera stúlkubarnið út; hún bjargar dóttur sinni með því að senda mann með hana til Þorgerðar Egilsdóttur mágkonu sinnar í Hjarðarholti í Dölum.
Bergfinnur. Norskur stýrimaður sem ræður draum Þorsteins.
Þorgerður Egilsdóttir í Hjarðarholti í Dölum, systir Þorsteins á Borg. Hún tók við Helgu nýfæddri.
Helga hin fagra, dóttir Þorsteins og Jófríðar á Borg. Að vissu leyti má líta á hana sem aðalpersónu sögunnar þó hún sé ekki mikið í sviðsljósinu og segi fátt. Hún er svanurinn í draumi föður síns! Og greinilegt er að hún elskaði Gunnlaug og var þvinguð til að giftast Hrafni. Það er afar rómantískur svipur yfir andlátssenunni þar sem hún deyr með skikkjuna frá Gunnlaugi í höndum.
Skúli Þorsteinsson, bróðir Helgu fögru, skáld og hirðmaður Eiríks jarls Hákonarsonar. Skúli bjargar Gunnlaugi undan reiði Eiríks jarls.
Illugi svarti Hallkelsson á Gilsbakka í Hvítársíðu, faðir Gunnlaugs ormstungu. Mikill höfðingi í Borgarfirði. Hann hefnir sonar síns í lok sögu.
Gunnlaugur ormstunga, aðalhetja sögunnar (geta má þess að langafi Gunnlaugs og nafni bar einnig viðurnefnið ormstunga). Gunnlaugur var „óráðinn“ í æsku og reyndist föður sínum óstýrilátur. Hann átti erfitt með að hemja skap sitt, sbr. það að ungur rotaði hann smalamann og vildi sjálfur ráða sektinni og komst upp með það eftir að hann hafði ort ógnandi vísu. Þetta skapgerðareinkenni fylgdi honum ævilangt. En þótt hann hafi verið hrjúfur á yfirborði er greinilegt að hann hefur elskað Helgu; það var ekki af ásettu ráði að hann kom einu ári of seint til Íslands til að ganga að eiga hana.   
Hrafn Önundarson frá Mosfelli í Mosfellssveit. Gott skáld og höfðingjasonur, sléttur og felldur. Hann gengur að eiga Helgu þótt hann viti að hún sé heitbundin Gunnlaugi. Hjónabandið er ekki farsælt. Hann berst við Gunnlaug til að útkljá mál þeirra þriggja. Í lokaviðureigninni fær Hrafn mikið sár;  hann biður Gunnlaug að færa sér vatn – og veitir honum banvænt sár áður en hann fellur sjálfur.
Hallfreður vandræðaskáld, þekktur úr mörgum sögum. Hann flutti Gunnlaug tvisvar milli landa.
Eftirtaldir þjóðhöfðingjar koma við sögu Gunnlaugs og móta lífshlaup hans: Eiríkur jarl í Noregi, Aðalráður konungur Englands, Sigtryggur konungur silkiskegg á Írlandi, Sigurður jarl Hlöðvisson í Orkneyjum, Sigurður jarl í Gautlandi og Ólafur konungur sænski í Svíþjóð.
Skalla-Grímur landnámsmaður á Borg – Bera Yngvarsdóttir
                                                                     I
                                                  Egill Skalla-Grímsson – Ásgerður
                                                                                        I____________________________
                                                                                        I                                                              I
                                                                        Þorsteinn Egilsson – Jófríður          Þorgerður í Hjarðarholti
                                                                                                          I_____
                                  I                                                                                  I
                      Helga fagra, heitkona Gunnlaugs                              Skúli Þorsteinsson