Kaflar

13. Sögulok

Áður en tíðindin af falli Gunnlaugs og Hrafns bárust til Íslands dreymdi Illuga á Gilsbakka að Gunnlaugur sonur hans kæmi til hans blóðugur mjög og lýsti bardaganum í vísu sem hann kvað. Sömu nótt dreymdi Önund á Mosfelli að Hrafn sonur hans kæmi blóðugur til hans og færi með vísu svipaða hinni að innihaldi. Á alþingi um sumarið krafði Illugi Önund bóta fyrir svik Hrafns. Önundur neitaði, og Illugi sagði þá að það mundi bitna á einhverjum af ættingjum hans. Um haustið fór Illugi með þrjátíu manns að Mosfelli og tók tvo frændur Önundar, lét drepa annan þeirra en fóthöggva hinn.
Hermundi, bróður Gunnlaugs, fannst að enn væri bróður síns ekki hefnt. Hann reið einn norður í Hrútafjörð þar sem Hrafn, bróðursonur Önundar á Mosfelli, var í þann veginn að stíga á skip – og lagði hann í gegn með spjóti. Engar bætur komu fyrir þessi víg.
Þegar stundir liðu fram giftist Helga hin fagra Þorkatli Hallkelssyni í Hraunsdal á Mýrum og eignuðust þau mörg börn. Þorkell var vaskur maður og auðugur og skáld gott. En samt varð Helga honum „lítt unnandi“ því að aldrei varð hún afhuga Gunnlaugi. Helsta gaman hennar var að handleika skikkjuna sem hann hafði gefið henni forðum daga.
Eitt sinn kom upp sótt á bæ þeirra Þorkels og Helgu og henni varð þungt fyrir brjósti en varð þó ekki rúmföst. Eitt laugardagskvöld sat hún í eldaskála og „hneigði höfuð í kné Þorkatli bónda sínum“; hún lét þá senda eftir skikkjunni Gunnlaugsnaut, settist upp og fór höndum um hana um stund. „Og síðan hné hún aftur í fang bónda sínum og var þá örend.“ Þorkell kvað þá vísu þar sem hann sagðist hafa lagt sína góðu konu andaða í faðm sér og að þungt mundi verða að lifa eftir hana.
Helga var færð til kirkju og Þorkell syrgði hana mjög.
vera e-m lítt unnandi: elska e-n lítið
verða afhuga einhverjum: hætta að hugsa um einhvern
eldaskáli: skáli þar sem setið var við langeld sem var í miðjum skála

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvernig frétti Önundur fyrst af dauða sonar síns?
2. Illugi, faðir Gunnlaugs, var ekki sáttur og krafði Önund, föður Hrafns, um bætur vegna svika Hrafns. Önundur neitaði að greiða bætur. Hve margir frændur Önundar voru drepnir í hefndarskyni fyrir Gunnlaug?
3. Hvað hét sá sem Hermundur Illugason drap í Hrútafirði?
4. Hvað eiga þeir þrír sem elskuðu Helgu sameiginlegt m.t.t. listrænna hæfileika?
5. Ef þú hugsar til baka til draums Þorsteins á Borg í upphafi sögu, hvernig getur þú ályktað að Þorkell í Hraunsási hafi ekki verið jafngöfugur höfðingi og þeir Gunnlaugur og Hrafn?
6. Hvernig getur þú vitað að örninn með svörtu augun og járnklærnar væri fylgja Gunnlaugs?
7. Hvað er það í lok sögunnar sem sýnir að Helga hefur elskað Gunnlaug fram í andlátið?