Kaflar

1. Draumur Þorsteins á Borg

Þorsteinn Egilsson bjó á Borg á Mýrum, og var mesti höfðingi í Borgarfirði og sonur hins fræga Egils Skallagrímssonar skálds og víkings. En afi Þorsteins var landnámsmaðurinn Skallagrímur. Hann hafði komið frá Noregi til Íslands með konu sinni Beru, og sest að á Borg. Afkomendur þeirra Beru og Skallagríms voru kallaðir Mýramenn og fara margar sögur af þeim. Þetta fólk birtist okkur í mörgum af okkar frægu gömlu Íslendingasögum. En snúum okkur núna að  Þorsteini á Borg, afabarni Skallagríms og Beru.
Þorsteinn kynntist konu sem hét Jófríður; hún var þá einstæð móðir, aðeins átján ára gömul, og átti litla dóttur sem hét Húngerður. Jófríður var mikill skörungur.
Það var eitt sumar að norskur stýrimaður, Bergfinnur að nafni, kom í Borgarfjörð og verslaði með varning sinn. Hann fékk að vera á Borg um veturinn hjá Jófríði og Þorsteini. Bergfinnur var vitur maður og hafði mikinn áhuga á draumum. Um vorið bað Þorsteinn Bergfinn að hjálpa sér að reisa búðarveggi á þingstað undir Valfelli, ekki mjög langt frá Borg. Yfir þessa veggi átti svo að tjalda á þeim tíma sem þing var haldið í héraðinu. 
Það var heitt í veðri og Þorsteinn settist við vegginn að verkinu loknu og sofnaði. Hann lét illa í svefni. En þegar hann vaknaði vildi Bergfinnur vita hvað hann hefði dreymt. Þá sagði Þorsteinn að honum hefði fundist hann vera utan við bæ sinn á Borg: „Þá sá ég álft á húsmæninum sem ég þóttist eiga. Og í því kom svarteygur örn fljúgandi ofan frá fjöllunum og settist hjá álftinni og lét vel að henni. Annar örn kom úr suðri og vildi einnig sýna álftinni blíðu. Sá örninn sem fyrir var tók því illa, og nú börðust þeir harkalega og lengi, og loks féllu þeir báðir alblóðugir niður af mæninum og voru þá báðir dauðir. Þá kom valur fljúgandi úr vestri. Hann lét blítt við álftina og síðan flugu þau tvö í vesturátt.“

Borg á Mýrum er örskammt frá þeim stað þar sem Borgarnes er nú
búðarveggir: búðir voru íverustaðir þeirra sem sóttu þing, bæði í héraði og á alþingi; veggirnir voru hlaðnir en tjaldað var yfir þá á þingtímanum

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hver var föðurafi aðalkvenhetju Gunnlaugs sögu ormstungu? .
2. Hvar bjuggu Þorsteinn Egilsson og Jófríður?
3. Hvað var ættfólkið frá Borg, afkomendur landnámsmannsins Skallagríms, kallað?
4. Nefndu barn Jófríðar, hálfsystur Helgu fögru.
5. Hvert er helsta hlutverk Bergfinns í sögunni?
6. Hvaða fuglategundir komu fram í draumi Þorsteins?
7. Hvers kyns var svanurinn í draumi Þorsteins Egilssonar?
8. Hvernig voru augun í erninum, sem kom ofan frá fjöllunum, á litinn?