Kaflar

11. Gunnlaugur hittir Helgu. Hrafn vill útkljá málin

Einn morgun á þinginu sá Gunnlaugur Helgu handan við Öxará og orti saknaðarvísu um hina svanfríðu Helgu sem hann horfði svörtum augum til. Hann fór yfir ána og þau töluðu saman um stund. Og þegar hann gekk austur yfir ána „þá stóð Helga og starði á Gunnlaug lengi eftir. Gunnlaugur leit þá aftur yfir ána og kvað vísu.“ Þetta er vísan sem hefst á orðunum frægu, „Brámáni skein brúna“. Innihald vísunnar er á þessa leið:
„Hin snöru augu hinnar vel klæddu konu skinu á mig undan björtu enni. En það augnaleiftur veldur síðan mér og henni hugarangri.“
Menn riðu heim, en skömmu síðar kom Hrafn að Gilsbakka og bauð að þeir færu báðir til Noregs og gengju þar á hólm. Frændum þeirra líkaði þetta illa. 
Hrafn fer utan og er í Þrándheimi um veturinn og fréttir ekki af Gunnlaugi. Hann bíður Gunnlaugs um sumarið, og enn annan vetur var hann í Lifangri í Þrándheimi.
Gunnlaugur fór einnig utan og kom til Orkneyja litlu fyrir vetur og var hjá Sigurði jarli um veturinn. Sumarið eftir herjaði hann með jarli um Suðureyjar og Skotlandsfirði en fór síðan til Noregs. Eiríkur jarl var á Hlöðum í Þrándheimi og bauð Gunnlaugi að vera þar um veturinn. Jarl lagði bann við að þeir Hrafn berðust á norskri grund.
Gunnlaugur var fálátur um veturinn. Um vorið sá hann tvo menn skylmast og þóttist annar vera Hrafn og hinn Gunnlaugur. Þeir sem hjá stóðu töluðu um að Íslendingar væru seinir að muna orð sín. Gunnlaugur þolir illa slíkar háðsglósur og vill nú hitta Hrafn og fær leyfi jarls til þess. Hann fer ásamt sex öðrum mönnum í Lifangur en þá hafði Hrafn farið þaðan um morguninn til Svíþjóðar og voru þeir fimm saman. Gunnlaugur hélt áfram og fann Hrafn. Úr varð að þeir berðust allir, fimm úr hvoru liði, því að frændur Hrafns vildu ekki sitja hjá, og sama var að segja um Þorkel svarta frænda Gunnlaugs. En tveir hirðmenn jarls, sem voru með Gunnlaugi, sátu hjá.
brámáni: máni bránna, þ.e. auga (brá: augnhár, augnalok)_
ganga á hólm_: heyja einvígi
Suðureyjar: Hebridis Islands við vestanvert Skotland

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Tveir litir birtast okkur beint og óbeint í fyrri vísu Gunnlaugs sem vísað er til. Þetta eru andstæðir litir. Hvaða litir eru það?
2. Í seinni vísu Gunnlaugs er augum og augnaráði Helgu líkt við ákveðið fyrirbæri í náttúrunni. Hvaða fyrirbæri er það?
3. Hvers vegna var Hrafn reiðubúinn að skora Gunnlaug á hólm eftir að fyrri hólmgangan leiddi ekki til neins?
4. Hvers vegna vildu þeir Hrafn og Gunnlaugur berjast utan landsteinanna?
5. Gunnlaugur virðist ekki beint hafa verið að flýta sér að hitta Hrafn á erlendri grund. Hvað varð til þess að hann ákvað að taka sig upp og reyna að ná hans fundi?
6. Hvers vegna fór hólmgangan ekki fram í ríki jarlsins í Noregi?
7. Hvers vegna var ekki um eiginlega hólmgöngu í Svíþjóð að ræða?