Kaflar

1. Fyrstu mennirnir

Saga heimsins mun hafa hafist fyrir eitthvað um 14 milljörðum ára og til að setja það í samhengi þá er einn milljarður þúsund milljónir.
Það var svo fyrir fjórum milljörðum ára að líf fór að myndast á jörðinni í einhverri mynd. Dýr komu fram fyrir tveimur og hálfri milljón ára. Má ætla að mörg þeirra dýra sem fram komu svo snemma séu ólík þeim sem við þekkjum í dag. Í því sambandi má nefna risaeðlur, stór hryggdýr sem urðu til fyrir um 240 milljónum ára en dóu svo út fyrir um 60 milljónum ára.
Fyrstu mannverurnar sem vitað er um virðast fyrst hafa þróast frá öpum í Afríku. Ber mönnum ekki alveg saman um hvenær það var en í bókinni Sapiens eftir Yuval Noah Harari er talað um að það hafi verið fyrir um tveimur og hálfri milljón ára og virðast fræðimenn almennt vera á þeirri skoðun.
Smátt og smátt dreifðust mannverur út um allan heim og þróuðust á ólíkan hátt eftir aðstæðum og umhverfi. Hafa fræðimenn fundið leifar af ólíkum gerðum af mönnum (homo) á mismunandi stöðum frá mismunandi tímum.
Dæmi um ólíkar tegundir manna eru:
Homo rudolfensis, en steingervingar úr slíkum manni fundust fyrst árið 1972 í Kenía. Voru þeir uppi fyrir um tveimur milljónum ára.
Leifar af Homo habilis (hinum handlagna manni) fundust í Afríku árið 1960. Sú tegund mun einnig hafa verið uppi fyrir um tveimur milljónum ára.
Leifar af Homo ergaster (hinum vinnandi manni) fundust í Kenía og víðar í Afríku. Fræðimenn telja að hann hafi verið uppi frá því um fyrir 1,7 milljónum ára og jafnvel þar til fyrir 600 þúsund árum.
Homo erectus (hinn upprétti maður) var í Afríku fyrir um 1,6 milljónum ára, en fluttist síðar búferlum til Asíu og Evrópu. Homo erectus bjó yfir þróaðri verkfærum en fyrirrennarar hans og nýttust verkfærin vel til veiðimennsku. Homo erectus byggði sér einnig skýli og mun þessi tegund hafa verið sú fyrsta sem nýtti sér eld.
Homo floresiensis er nýlega uppgötvuð tegund manna sem var einstaklega smávaxin. Hún fannst á eyjunni Flores í Indónesíu. Talið er að hún sé komin af hinum upprétta manni og hafi komið til Flores fyrir um 800.000 árum en svo horfið af sjónarsviðinu fyrir um 13.000 árum.
Fræðimenn eru ekki á eitt sáttir hvað varðar Homo heidelbergensis (Heidelberg manninn). Sumir telja að hann hafi þróast frá hinum upprétta manni en aðrir trúa að hann hafi verið sérafbrigði. Hann mun einkum hafa lifað í Evrópu frá því fyrir sex hundruð þúsund árum þar til hann dó út fyrir um þrjú hundruð þúsund árum.
Homo neanderthalensis (Neanderdalsmaðurinn) er ýmist flokkaður sem undirtegund manna (Homo sapiens neanderthalensis) eða sem aðskilin tegund (Homo neanderthalensis).
Tegundin heitir eftir Neanderdal sem er 12 km austan við Düsseldorf í Þýskalandi vegna þess að ensk-írski jarðfræðingurinn William King stakk upp á því fyrstur manna 1864 að beinaleifar sem þar höfðu fundist árið 1856 væru ekki bein nútímamanna heldur af annarri tegund.
Neanderdalsmenn eru taldir hafa þróast út frá Heidelbergmanninum sem kom til Evrópu mun fyrr. Þeir eru taldir hafa komið fram fyrir um 200.000 árum og dáið út fyrir 28.000 árum. Mest af leifum þeirra hafa fundist víða í Evrópu en einnig allt austur til Írans og norður til Síberíu.
Homo sapiens (hinn vitiborni maður) er einnig talinn hafa þróast út frá Heidelbergmanninum fyrir um 300.000 árum. Homo sapiens dreifði sér um heiminn og ruddi öðrum tegundum frummanna úr vegi og er eina tegund manna sem til er í dag.
Því hefur stundum verið haldið fram að þessar tegundir hafi þróast hver af annarri en það er ekki alls kostar rétt, því þó uppruni þeirra sé sá sami þá þróuðust þær á ólíkan hátt vegna áhrifa frá umhverfinu.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvenær varð heimurinn til samkvæmt greininni?
2. Hvað er langt síðan líf kviknaði á jörðinni?
3. Hvenær komu dýr fyrst fram á jörðinni?
4. Hvenær voru risaeðlur uppi á jörðinni?
5. Hvenær birtust fyrstu mannverurnar á jörðinni?
6. Hvar urðu fyrstu mannverurnar til?
7. Af hverju ætli mannverur hafi þróast á ólíkan máta?
8. Hvaða menn voru fyrstir til að nýta sér eld að talið er?
9. Frá hvaða manni er Homo sapiens talinn hafa þróast?
10. Hvenær kom Homo sapiens fram á sjónarsviðið?