Kaflar

1935: Konungur rokksins leit dagsins ljós

Á þessu ári fæddust tveir af frumkvöðlum rokksins en það voru þeir Elvis Presley sem kallaður hefur verið konungur rokksins og Jerry Lee Lewis sem einnig naut gríðarlegra vinsælda.
Þá lést hinn svokallaði konungur tangósins Carlos Gardel í flugslysi í Kólumbíu 24. júní. Hann var argentínskur söngvari, lagahöfundur og leikari og þótti einn áhrifamesti túlkandi tónlistar á fyrri hluta 20. aldar.
Kvikmyndin Top Hat með þeim Fred Astaire og Ginger Rodgers í aðalhlutverkum var frumsýnd 29. ágúst við gríðarlegar vinsældir. Samstarf þeirra Astaire og Rodgers þótti mjög áhrifamikið og léku þau í mörgum myndum saman.
Á þessu ári fór Reza Pahlevi fram á það við umheiminn að farið yrði að kalla ríki hans Íran í stað Persíu sem landið hafði almennt verið kallað.
Á þessu ári tóku neðanjarðarlestir að flytja fólk milli staða í Moskvu í fyrsta sinn.
Þann þriðja nóvember setti kóreski hlauparinn Sohn Kee-chung nýtt heimsmet í maraþonhlaupi er hann hljóp það á tímanum 2 klukkustundum 28 mínútum og 42 sekúndum. Stóð það met fram til 1947.
Þann 14. desember skoraði Ted Drake sjö mörk í einum leik fyrir Arsenal í 7-1 sigri þeirra á Aston Villa. Það met stendur enn.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvað hefur Elvis Presley gjarnan verið kallaður?
2. Hvaða argentínski listamaður lést í flugslysi 24. júní 1935?
3. Hvaða kvikmynd var frumsýnd 29. ágúst 1935?
4. Hvað hét Íran áður?
5. Hvaða umbætur urðu í samgöngumálum Moskvuborgar á árinu 1935?
6. Hvað afrekaði Sohn Kee-chung á árinu?
7. Fyrir hvaða lið lék Ted Drake?