Kaflar

1936: Ítalir hertaka Eþíópíu

Benito Mussolini stofnaði fasistaflokkinn á Ítalíu eftir fyrri heimsstyrjöldina. Hann var gerður að forsætisráðherra Ítalíu árið 1922 og þremur árum síðar var hann orðinn einvaldur. Mussolini vildi eignast nýlendur eins og hin Evrópuríkin, og eina ríkið í Afríku sem laut engum nýlenduherrum var Eþíópía. Í Eþíópíu var við völd Haile Selassie og hafði hann unnið að umbótum fyrir þegnana og fært íbúum þar sína fyrstu stjórnarskrá.
Þriðja október 1935 réðst Mussolini með mikinn her inn í Eþíópíu. Var herinn útbúinn öflugum vopnum og studdur af 500 orrustuflugvélum.
Haile Selassie tók strax til varna og þrátt fyrir óþjálfaðan her þar sem sumir voru einungis vopnaðir spjótum og skjöldum tókst þeim að stöðva fyrstu framrás Ítala. Það var ekki fyrr en tuttugasta og sjötta apríl 1936 að Ítalir náðu að yfirbuga Eþíópíu og Haile Selassie flúði land.
Sigur Ítala vannst með yfirburðum í vopnabúnaði auk þess sem ítalski herinn lét rigna eiturgasi yfir andstæðingana með skelfilegum afleiðingum.
Haile Selassie hélt ræðu hjá Sameinuðu þjóðunum og þrátt fyrir samúð fékk hann engan stuðning þar. Það var ekki fyrr en almenningur í Bretlandi og Frakklandi krafðist þess að þjóðirnar mótmæltu hernámi Ítala að afstaða Sameinuðu þjóðanna breyttist.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hver stofnaði fasistaflokkinn á Ítalíu?
2. Hvenær varð Benito Mussolini forsætisráðherra Ítalíu?
3. Hvað fannst Mussolini Ítali vanta í samanburði við önnur lönd?
4. Að hvaða leyti hafði Eþíópía sérstöðu meðal Afríkuríkja?
5. Hver var við völd í Eþíópíu árið 1936?
6. Hvenær tókst Ítölum að vinna sigur á Eþíópíu?
7. Hvernig brást alþjóðasamfélagið við hernámi Ítala á Eþíópíu?