Kaflar

1941: Japanir ráðast á Pearl Harbor

Japanir gengu til liðs við Öxulveldin 29. september 1940. Þá hafði samband þeirra við Bandaríkin verið erfitt vegna innrásar Japana í Kína. Með þátttöku Japana í stríðinu færðist það út á Kyrrahafið og Asíu.  Þegar Japanir hernámu Indókína af Frökkum settu Bandaríkin viðskiptabann á Japan.
Það var svo þann 7. desember árið 1941 að Japanir gerðu óvænta loftárás á flotastöð Bandaríkjanna við Pearl Harbor í Hawaii-eyjaklasanum og ollu þar gríðarlegri eyðileggingu og dauða um 2000 manns.
Daginn eftir sögðu Bandaríkin Japönum stríð á hendur.
Eftir árásina var bandaríski flotinn laskaður og það nýttu Japanir sér til að hernema Filippseyjar, stór svæði í Malasíu og Myanmar. Um mitt ár 1942 sneru Bandaríkjamenn vörn í sókn. Þrátt fyrir hatramma baráttu Japana náðu Bandaríkjamenn smátt og smátt að endurheimta landsvæði sem Japanir höfðu hernumið, og í febrúar voru Bandaríkjamenn komnir að landamærum Japana.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hverjir gengu til liðs við Öxulveldin í september 1940?
2. Hvað varð til þess að Bandaríkin settu viðskiptabann á Japani?
3. Hvað átti sér stað 7. desember 1941?
4. Hvað átti sér stað 8. desember 1941?
5. Hvaða svæði hernámu Japanir eftir Pearl Harbor?